Úrval - 01.10.1944, Síða 49
Hér verður brugðið upp mynd af ferðalagi þínu í
sumarleyfinu eftir stríð.
Hraðlestir loftsins.
Grein úr „Aero Digest“,
eftir H. J. Maynard, jr.
þ Ú ekur straumlínuvagni,
gljáfægðum afkomanda
hins alþekkta jeppa, um borð í
sviffluguna. Vagninum kemur
þú fyrir í lestarrými hennar. Að
því búnu tekur þú þér sæti, og
f jölskyldan, í þægindum búnum
farþegaklefanum fram í flug-
unni. Augnabliki síðar sérðu
flugvöllinn líða undan fótum
þér. Þú ert kominn á ferð og
flug, og allt hefir þetta skeð
með næstum yfirnáttúrulegu
hávaðaleysi. Hvorki vélaskrölt
né þytur af skrúfublöðum rask-
ar ró þinni. Þú rabbar við f jöl-
skylduna jafn áreynslulaust
eins og þú værir staddur heima
í setustofunni yfir kaffibolla og
dagblaði. Þetta er luxusferðalag
þitt í sumarleyfi framtíðarinn-
ar, ferð á töfraábreiðu þúsund
og einnar nætur nútímans —
svifflugunni. Yfir Denverborg
tekur þú símaáhaldið, sem ligg-
ur á borði við hlið þér. „Viljið
þér gjöra svo vel og gefa mér
samband við miðstöð Denver-
borgar.“ Sendistöð svifflug-
unnar nær sambandi við flug-
völl borgarinnar. Millisamband
er gefið, og brátt ert þú í hróka-
samræðum við kunningja þinn í
borginni. Ef þú vilt, færðu sam-
band hvert sem er í Ameríku
eða ef þér liggur mjög á því,
þá getur þú fengið samband við
viðskiptavin í Lundúnaborg.
Þessu kemur millilandastarf-
semi útvarpsins til leiðar.
Það fer mjög þægilega um þig
og ferðin gengur greitt. Áður
en varir ertu kominn á ákvörð-
unarstað, fyrsta dvalarstað f jöl-
skyldunnar í sumarleyfinu. —
Stóru Canyonborg. Borgin breið-
ir úr sér fyrir neðan þig,
flugvöllurinn, sem svifflugan
ætlar að lenda á, er spölkorn
utan við borgina. Um leið og þú
lítur út og fram um gluggann
sérðu nokkrar af öðrum svif-
flugum lestarinnar, dregnar af
sömu vélinni. Öll lestin mun