Úrval - 01.10.1944, Síða 124
122
ÚRVAL
hana. Kassinn hafði verið rifinn
utan af henni.
Hún var úr bronzi, og áhöfnin
á Corelli hafði lagt það á sig að
fága hana, svo að hún ljómaði í
miðdegissólinni, eins og hún
væri úr gulli.
U. S. S. CORELLI
Americia ed Italia
Þegar Caropardo sá, að
majórinn var að lesa áletrunina,
spurði hann: ,,Hver er þessi
Corelli og hvemig stendur á
því, að nafn hans er á klukku
Adanoborgar?"
Majórinn sagði: „Ég skal
segja yður það seinna, þegar
búið er að koma klukkunni
upp.“
Loks kom hringjarinn. Hann
gekk nokkrum sinnum um-
hverfis klukkuna og horfði á
liana. Því næst beygði han sig
og fór um hana með flötum lófa
ofan frá og niður úr. Þá rétti
hann úr sér og virtist lesa
áritunina hvað eftir annað.
Hann leit einu sinni upp í
klukkuturninn þar sem nokkrir
menn voru að útbúa lyftitæki.
Hann bað um, að klukkunni væri
velt við og þegar nokkrir af
verkamönnunum höfðu lagt
hana á hliðina leit hann inn 1
hana.
Að lokum rétti hann úr sér,
yppti öxlum og sagði: „Það er
allt í lagi með hana.“
„Það er gott,“ sagði majór-
inn.
Þegar klukkan var orðin
nokkrar mínútur yfir eitt, fór
majórinn heim í íbúð sína til
þess að fá sér dúr. Hann ætlaði
að safna kröftum fyrir sam-
kvæmið — en hann ætlaði
einnig að hugsa svolítið um
klukkuræðuna, sem hann ætlaði
að flytja þar.
Hann hugsaði sér að segja
nokkur orð um brottflutning
gömlu klukkunnar. Því næst
ætlaði hann að segja frá því, að
íbúar Adano hefðu vakið áhuga
sinn með því að gera tilraun til
að fá aðra klukku. Þá nokkur
orð um Corelli og það sem hann
hafði gert fyrir ítali í síðasta
stríði og því næst hvaða þýð-
ingu áletrunin á klukkunni,
America ed Italia, Ameríka og
Italía, hefði í dag og svo ef til vill
nokkur orð um Frelsisklukku
Bandaríkjamanna. Eftir að
hann hafði minnst á hana fyrsta
daginn, hafði hann skrifað til
aðalstöðva Angot og spurzt
fyrir um hana, og nú gat hann
skýrt af hverju bresturinn var,
og hann ætlaði að segja Adano-