Úrval - 01.08.1945, Síða 4
2
tTRVALi
Hann vissi að eitthvað skorti í
lífi hans, en hann vissi ekki
hvað það var. Dag nokkurn
datt honum í hug að smíða
sjálfur lítið borð, sem hann
vantaði í dagstofuna. Hann
hafði aldrei unnið að handiðn,
en hann útvegaði sér timbur og
verkfæri. Fyrsta kvöldið vann
hann til miðnættis.
„Það kom dálítið skrítið fyrir
mig,“ sagði hann við mig.
„Þegar borðið tók að fá mynd
á sig við handbragð mitt, greip
mig í fyrsta skipti sú tilfinning,
að ég væri sjálfur að skapa eitt-
hvað. Þegar ég var að hefla
plötuna að ofan, tók ég eftir
hinni undurfögru gerð viðar-
æðanna og ég keypti mér áburð
til þess að bera á plötuna svo
að þær kæmu skýrar í ljós. Og
allt í einu var mér ljóst, að ég
var að skapa eitthvað fallegt.
Ég var gripinn innilegri fögn-
uði en þegar ég vann fyrsta
málið mitt fyrir rétti“.
Þessi lögfræðingur er nú bú-
inn að koma upp smíðaverk-
stæði í kjallaranum heima hjá
sér og vinnur þar fimm eða sex
stundir í hverri viku.
„Þegar ég er að vinna á verk-
stæðinu mínu,“ sagði hann við
mig mn daginn, „gleymi ég öll-
um áhyggjmn og ábyrgð, og það
birtir í huga mínum eins og
þegar léttir í lofti eftir storm.
Ég veit að það hljómar eins'ö'g
fjarstæða, en þegar mér hefir
tekizt sérstaklega vel með eitt-
hvað, er mér innanbrjósts eins
og Leonardo da Vinci hlýtur að
hafa verið, þegar hann leit á
Mona Lísu eftir að hann hafði
lokið við hana“.
Þessi tilfinning er alls ekki
fjarstæða. Sálfræðilega er hún
algjörlega heilbrigð. Sérhver
skapari finnur til samskonar
sjálfsfullnægingar yfir loknu
verki, hvort sem það er eldhús-
stóll eða gotnesk dómkirkja.
Mestu máli skiptir, hvað þú
leggur sjálfur í verkið — ekki
hvað öðrum finnst um það, þeg-
ar því er lokið.
Auk þess er beinlínis
hættulegt að nota ekki hend-
urnar. Tilraunir taugalækna við
Templeháskólann og aðra há-
skóla sýna, að andleg geta
manna vex jafnhliða því sem
þeim vex handleikni. Handíðir
krefjast skýrrar hugsunar, að
menn leysi sjálfir úr vanda-
málum sínum. Og rnörg tilfelli
andlegs jafnvægisleysis má
lækna með því að kenna sjúkl-
ingnum að nota hendurnar,.