Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 61
RANGEYGIR FÁ RETTA SÝN
59
tinni var skipt niður í stúkur.
Fyrir framan hvert tæki sat
rangeygt barn á stól, og á bak
við það sat stúlka í hvíturn
slopp.
Stúlkan byrjar á því að
smeygja tveim ólíkum mynd-
plötum sinni í hvora sjónpípu.
Á annarri er til dæmis mynd af
liundi, en af hundabyrgi á hinni.
Ef maður með eðlilega sjón lít-
ur í sjónpípurnar, sér hann
hundinn í byrginu, en ef rang-
eygur maður horfir í sjónpíp-
umar í sömu stellingum, sér
hann annað tveggja, hundinn
eða byrgið, ekki hvorttveggja-
Heilbrigð augu eru eins og
tvær ljósmyndavélar, sem
smella á sama augnabliki og
gefa tvær skýrar myndir, sem
skarast saman. Þessar myndir
hverfa hvor í aðra og renna
saman í eina í heilanum. í rang-
eygum manni er öðru ljós-
myndatækinu snúið til hliðar.
Frá fræðilegu sjónarrniði ætti
afleiðing þess að vera tvær að-
greindar myndir, en heilinn
neitar að taka við tveim mynd-
m Ranga augað er því ekki
sjáandi, þótt það sé opið.
Á nethimnu augans er örlítill
gulur blettur, sem nefnist ma-
ciila lutea. Á honum koma fram
skýrustu myndirnar. Á svæði
umhverfis gula blettinn koma
fram óglöggar sjónmyndir, þeg-
ar augunum er rennt á ská. 1
rangeygum manni notar heil-
brigða augað gula blettinn, en
hitt augað venst á að nota þann
flöt nethimnunnar, sem er utan
við gula blettinn.
Aðalviðfangsefni þeirra, sem
framkvæma sjónréttingu, er að
venja börnin af þessu og kenna
þeim að nota gula blettinn á
báðum augum. Myndaplötunum
má snúa til í samræmi við sjón-
skekkjuna. Síðan eru augun
æfð stöðugt, og sjúklingurimi
fær ekkert tækifæri til að beita
þeim fleti nethimnunnar, sem
gefur óglöggar myndir. Að
nokkrum tíma liðnum kemst
hann upp á lag með að fá tvær
greinilegar, skaraðar myndir,
sem renna saman í eina skýra
mynd.
Ég staldraði við eina stúk-
una í lækningastofunni til að
virða fyrir mér lækni, sem var
að gera tilraunir með 5 ára
gamalt barn. Hann setti inn
myndaplötur af fugli og búri
og spurði barnið, hvað það sæi.
,,Ég sé fugl,“ svaraði barnið.
Síðan færði hann ploturnar
saman og spurði:
8*