Úrval - 01.02.1949, Page 81

Úrval - 01.02.1949, Page 81
OFDRYKKJA OG LÆKNING HENNAR 79 þeirra eða heima hjá þeim, mundi ég ekki fá það, og ég er stoltur af því. Það er mér mikils virði að vita, að vinum mínum finnst ég ekki leiðinlegur ó- drukkinn: þvert á móti, ég var leiðinlegur drukkinn, þó að ég vissi það ekki. Ég hef nú uppgötvað, að það er ýmislegt, sem verra er að vera án en áfengi, og frelsunin úr klóm þess veitir marga óvænta gleði. Ég veit, að þótt ég hljóti aldrei fulla lækningu, er miklu auðveldara að þoia sjúkdóminn, en ég hafði gert mér í hugar- lund. I fyrsta skipti í mörg ár finn ég til vellíðunar. Ég sæki ánægju í margskonar athafnir, andlegar og líkamlegar, sem um langt skeið hafa verið lokuð bók fyrir mig. Heimilislíf mitt er aftur orðið heilbrigt og ánægju- legt. En hvernig fór ég að því að hætta? Ég leitaði á náðir „Félags nafnlausra áfengis- sjúklinga", eins og ég sagði áð- an, og ég uppgötvaði, að það sem ég gat ekki gert sjálfur, hve feginn sem ég vildi og þurfti, gat ég með þeirra hjálp, með hjálp annarra ofdrykkjumanna, og með því að hjálpa þeim. Auð- vitað kemur það fyrir, að á mig sækir vonleysi og áköf freisting, þegar allt virðist öfugt og umsnúið, og það eina, sem virðist geta kippt öllu í lag sé vænt glas af sterku áfengi. En þá kem ég alltaf auga á ein- hvern annan, sem virðist hafa miklu meiri þörf fyrir hjálp en ég fyrir áfengi, og með því að hjálpa honum, gleymi ég erfið- leikum sjálfs míns. í þessu er fólginn styrkur ,,F.N.Á..“ Það væri aumur mað- ur sem neitaði að hjálpa ein- hverjum, af því að hann langaði sjálfan í áfengi, og hann væri meira en lítill hræsnari, ef hann svalaði þorsta sínum áður, án þess að viðurkenna, að hann hefði gert það. Auk þess er ekki hægt að blekkja ofdrykkju- menn þannig. Til þess eru þeir öllum hnútum of kunnugir. Fyr- ir tiltölulega skömmu þurfti ég að leysa af hendi verk, sem var mér mjög ógeðfellt. Það fékk mjög á mig, en ég gat ekki skot- ið mér undan að gera það. Ég hafði ekki bragðað vín í margar vikur, þegar einn morgun beið mín viðtal á skrifstofunni klukkan 11,30 við mann, sem ég kveið fyrir að hitta. Hann hafði fram að færa kvörtun, sem mér fannst fyllilega réttmæt, þó að ég mætti ekki láta það uppL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.