Úrval - 01.04.1953, Síða 99

Úrval - 01.04.1953, Síða 99
FLÓTTINN ÚR PARADlS 97 Ungfrú Eide fór að söngla og stakk upp á að þau fengju sér göngutúr úteftir ströndinni. Stefansen lektor leit á klukk- una og kvaðst gjarnan vilja fara með henni. „En það er ekkert gaman að koma seint í matinn“, sagði hann. „Þú þekkir mömmu.“ „Við höfum klukkutíma til stefnu“, sagði ungfrú Eide. „Ég var að koma heiman frá þér.“ „Jæja, varstu heima?“ sagði Stefansen. Þau gengu gegnum bæinn og niður að sjónum og settust á trjábol. Stefansen lektor kastaði steini út á sjóinn, hann fleytti kerlingar eins og hann var van- ur að gera þegar hann var strákur. Steinamir hoppuðu eft- ir vatnsfletinum og hvert hopp var „fiskur.“ f eitt skiptið fékk hann hvorki meira né minna en 10 „fiska“. Ungfrú Eide fékk aldrei meira en þrjá. Hann færði sig spottakom frá ungfrú Eide til þess að geta sveiflað hand- leggnum. „Nú fleytum við ekki lengur kerlingar,“ sagði ungfrú Eide. „Nei,“ sagði Stefansen lektor. Hann náði sér í spýtu og gróf skel upp úr sandinum. Ungfrú Eide fór að söngla. Stefansen lektor tróð í pípuna sína, kveikti í henni og varð hugsi. Hann fór að hugsa um að hann hefði verið með ungfrú Eide síðasta misserið, að honum litizt vel á hana, hún væri þrjátíu og tveggja ára gömul eins og hann Arthur Omre er einn af fremstu nútímarithöfundum Norðmanna. Hann er fæddur 1887, en um ævi hans er lítið vitað og sjálfur er hann fáorður um hana. Vitað er þó að hann hefur lifað mjög- breytilegu lifi, verið til sjós og dvalið langdvöl- um í Bandaríkjunum, fékkst þar m. a. við blaðamennsku, aðallega sem sakamálafréttaritari. 1 umbrotasömu. lífi hefur hann haft náin kynni af margskonar umhverfi og fólki, m. a. því fólki sem lifir ábotnisamfélagsins. Hann gaf út fyrstu bók sína fyrir 17 árum, þá nærri fimmtugur. Það var stutt skáldsaga, Smyglarar, ó- venju þroskað og hnitmiða byrjanda- verk. Síðan kom hver skáldsagan á fætur annarri, þar á meðal Flótt- inn, sem er framhald af Smyglurum,. og Intermezzo, sem er hugljúf ástar- saga. Auk þess hefur komið út eftir hann hvert smásagnasafnið á fætur öðru og nýtur frásagnarsnilld Omre sín ef til vill hvergi betur en í hinu knappa formi smásögunnar. Sagan sem hér birtist er alveg ný, kom út í janúarhefti smásagnatíma- ritsins All várldens beráttare. Norskt kvikmyndafélag er að hefja töku myndar sem byggist á þessari sögu. sjálfur, dóttir Eide timburkaup- manns, sem var velefnaður. Stefansen lektor hugsaði með sér, að á betra kvonfangi ætti hann tæpast völ. Falleg og stað- föst stúlka. í fyrstu hafði hún skopast að feimnislegum tilburð- um hans. „Þið farið til Grimstad á laugardaginn, hef ég frétt“, sagði hún. „Við Mimi höfum rætt málið. Við getum fengið leigðan lítin sumarbústað þar niður frá. Hvað segir þú um það? Við Hvað segirðu um það? Við get- um líka fengið lánaðan vélbát.“'
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.