Úrval - 01.05.1953, Page 5

Úrval - 01.05.1953, Page 5
HANS FALLADA 3 sér klafann, mistókst honum að losna. Þegar hann í örvæntingu sinni, vegna hörku eins kennar- ans og fjandskapar allra í sinn garð, reyndi að strjúka til Ameríku, var hann gripinn og fluttur heim, áður en hann komst á brautarstöðina. Það kom í ljós, að hann hafði hnupl- að sér farareyrinum, og einnig var nestið fengið ófrjálsri hendi. Hann var sem sagt þjófur. Sonur hæstaréttardóm- ara og sléttur þjófur! Og hann laug ekki eins og hin börnin, þannig að honum yrði trúað. Lygar hans voru óeðlilegar og öfgafullar og svo fáránlegar, að þeim var ekki trúað. Hann var sem sagt bæði heimskur og gjörspilltur. En þó snáðinn væri forhertur að dómi hinna fullorðnu, var hann ekki beittur líkamsrefsingum. Og var þetta þó á því skeiði vest- rænnar menningar, þegar álitið var, að enginn yrði óbarinn biskup. Faðir Rudolfs var af þeirri tegund embættismanna, sem sýndu yfirvöldunum skilyrðis- lausa hlýðni. Er þetta gott dæmi um skortinn á sjálfstæðu siðferðismati einstaklinganna á tímum nazista. Það hæsta, sem menn gátu náð, var að hans áliti, að dæma aðra eftir bók- staf laganna. Boðorðum hans á heimilinu varð ekki um þokað. Móðirin var einmitt eins og keisarinn sjálfur hafði fyrir- skipað, að eiginkona skyldi vera: kirkjurækin kona sem hugsaði einungis um heimili og börn. Hún lagði þann skiln- ing í hjúskapartryggð, að konan ætti ekki að eiga nein leyndarmál fyrir manni sín- um. Þetta hafði það í för með sér m. a., að börnin þorðu ekki að sýna henni neinn trúnað eða tala við hana í einlægni. Milli foreldra og barna risu óyfir- stíganlegir múrar valds, fálæt- is, tortryggni, hræsni og ósann- sögli. Kjörorð heimilisins var spar- semi og agi. Bannað var að víkja sér að heiman í frístund- um sínum, bannað að lesa Indí- ánasögur og bannað að lesa blöð. Það var einnig að heita mátti bannað að lesa skáld- skap. Hins vegar áleit faðirinn Rudolf syni sínum gagnlegt að lesa skjöl sakamáladómstólsins. Réttarbókin um morðingja, þjófa, hórumangara, ræningja, falsara og brennuvarga varð ævintýralestur hins bókhneigða drengs. Það var hugsun föður- ins, að drengurinn skyldi á þennan hátt kynnast starfsað- ferðum þeim, sem réttvísin notaði til að fá sakamenn dæmda. En það, sem tók hug drengsins fanginn í lestrinum, var eitthvað það, sem heim- færa mátti upp á viðhorf hans til umhverfisins. Það var mannssálin sjálf í hildarleik yfirheyrslunnar, það var bar- átta sakamannsins fyrir lífi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.