Úrval - 01.05.1953, Side 33
SANNLEIKURINN UM KYNSKIPTINGA
31
að gera eina skurðaðgerð til að
gefa henni hið rétta kyn sitt;
aðra til að skera burt hin ytri
karlkynfæri; og þá þriðju (eða
jafnvel fleiri) til að gera kon-
unni kleift að lifa eðlilegu kyn-
lífi. Samtímis eru henni gefin
lyf — fyrst og fremst hið nýja
lyf cortison •— til að koma af
stað eðlilegri starfsemi nýrna-
hettanna og stöðva offram-
leiðslu þeirra á karlkynhormón-
um.
Christine hefur þegar fengið
2000 hormóngjafir og mun
halda áfram að taka cortison
alla ævi. „Það er ekki ósvipað
og um sykursýki," segir einn
sérfræðingur á þessu sviði. „Á
meðan hormónagjöfunum er
haldið áfram er hægt að halda
starfsemi kirtlanna í skefjum,
á sama hátt og sykursýki er
haldið niðri með insúlíngjöf-
um.“
Þegar gera á aðgerð á svona
tvíkynja sjúklingum vaknar
ailtaf spurningin: á að breyta
sjúklingnum í karl eða konu?
Meðal lækna eru skiptar skoð-
anir á þessu, sumir telja að
fyrst og fremst beri að taka til-
lit til hins sálræna ástands
sjúklingsins, aðrir telja að hið
lífeðlisfræðilega ástand eigi að
ráða úrslitum.
Pjórir læknar skrifuðu ný-
lega um þetta í amerískt lækna-
tímarit og mæltu með „því ein-
falda ráði að halda sér við það
kynferði sem fæðingarvottorðið
segir til um og kref jast þess að
sjúklingurinn geri slíkt hið
sama“. Þeir tilfæra sem dæmi
átta hermafródíta er aldir höfðu
verið upp sem stúikur, þótt þeir
væru í eðli sínu karlkyns. Þeir
voru skornir upp og tekin úr
þeim eistun. Þessi aðgerð, sam-
fara gjöfum kvenkynhormóna,
framkallaði „fullnægjandi" þró-
un kvenlegra eiginleika.
En þrátt fyrir uppeldið segja
kynkirtlarnir stundum til sín.
Þannig var um tvítuga stúlku,
sem var í heimavistarskóla, og
var í eðli sínu karlmaður. Allt
frá því hún varð kynþroska tók
hún eftir því að snípurinn
þrútnaði stundum, og í skólan-
um tók hún alltaf að sér
drengjahlutverk í leikjum sín-
um við skólasysturnar.
Þetta vakti hjá henni grun
um að hún væri í eðli sínu karl-
kyns, og læknisskoðun staðfesti
það. Með skurðaðgerð var henni
breytt í karlmann. Svo vel-
heppnuð var skurðaðgerðin, að
eftir að hinn nýi karlmaður fór
af spítalanum kvæntist hann
hjúkrunarkonunni sem hafði
stundað hann. Þau hjónin njóta
eðlilegs kynlífs, þó að mjög
vafasamt sé að þau geti eignast
afkvæmi frekar en aðrir herma-
fródítar.
En togstreita milli sálræns og
eiginlegs kynferðis getur líka
leitt til ógæfu. Komið var með
ungan pilt til skoðunar vegna
vansköpunar á ytri kynfærum.
Uppskurður leiddi í ljós full-
þroskuð innri kynfæri konm