Úrval - 01.05.1953, Side 114
112
tJRVAL
Nýjung í meðferð og sölu
mjólkur.
Fyrir nokkru kom á mark-
aðinn í Bandaríkjunum ,,þykk“
(concentrated) mjólk — mjólk
sem tveir-þriðju hlutar vatns-
ins hafa verið teknir úr.
Hún er seld í pappaílátum og
lítur út eins og rjómi. Ef tveim
hlutum af vatni er bætt í hana,
verður hún að öllu leyti eins og
,,pasteuríseruð“ nýmjólk. Eng-
an bragðmun er unnt að greina
á henni og nýmjólk.
Nýjung þessi getur haft mikil
áhrif á dreifingu og sölu mjólk-
ur. Húsmóðir, sem kaupir þrjá
lítra af mjólk, rogast heim með
tvö kíló af vatni. Ef hún kaupir
,,þykka“ mjólk, losnar hún að
mestu við þenna vatnsburð;
mjólkin tekur þrisvar sinnum
minna pláss í ísskápnum; af-
greiðslustúlkumar í mjólkur-
búðunum afgreiða þrefalt minna
magn og umbúðakostnaður
verður þrefalt minni.
,,Þykk“ mjólk var fyrst seld
200 f jölskyldum til reynslu. Að-
spurðar eftir nokkrar vikur
kváðust 96% þeirra ekki finna
neinn mun á henni og nýmjólk.
Tilraunir og fengin reynsla
hafa leitt í ljós, að „þykk“
mjólk geymist að minnsta kosti
helmingi lengur en nýmjólk í
ísskáp. Meginástæðan er aukið
mjólkursykurmagn. Um borð í
flugvélamóðurskipi geymdist ein
sending í 26 daga alveg ó-
skemmd.
Mörg heimili hafa tekið upp
á því að nota ,,þykku“ mjólkina
óblandaða eða í stað rjóma, því
að hún er ódýrari og ekki eins
fitandi.
Margra ára tilraunir fóru
fram áður en þessi nýjung gat
komið á markað. Það er auð-
velt að taka vatnið úr mjólkinni
með því að láta það gufa upp
við háan hita, eins og gert er
þegar framleidd er niðursoðin
mjólk, en við það breytist hinn
náttúrlegi keimur mjólkurinnar.
En ef lofti er dælt úr hitunar-
geyminum, gufar vatnið upp við
miklu lægri hita (suðumark
vatns lækkar með lækkandi
þrýstingi). Við eimun mjólkur-
innar er loftþrýstingurinn læklc-
aður svo mikið, að 48—60° á C.
nægja til að eima burt vatnið,
og sá hiti hefur engin áhrif á
bragð mjólkurinnar.
Verðið á „þykkri“ mjólk í
eins lítra pappaílátum er sem
stendur 6 centum (einni krónu)
lægra en þrír lítrar eða jafn-
gildi hennar af nýmjólk.
Vinnslu- og dreifingarkostn-
aður „þykkrar" mjólkur í eins
lítra pappaílátum er sem stend-
ur 2 centum (33 aurum) lægri
á hvem lítra nýmjólkur en sami
kostnaður við venjulega með-
höndlun mjólkurinnar. Sparn-
aðurinn er að sjálfsögðu einkum
fólginn í minnkandi flutnings-
og umbúðakostnaði.
— Harland Manchester.