Úrval - 01.12.1957, Side 11

Úrval - 01.12.1957, Side 11
EINMANALEIKINN: RANGHVERFA BORGARLlFSINS tTRVAL vel í London hefur skipulagið verið tekið til gagngerrar end- urskoðunar með það fyrir aug- um að kljúfa þetta mikla bákn í smærri bæjarfélög, er geti starfað sem sjálfstæðar heildir og þannig orðið betri staðir til að búa í. Eins og áður segir er það nú viðurkennt, að samfélagið verði að leggja fram sinn skerf til þess að rjúfa einangrun mannsins með því að skapa hon- um ytri skilyrði til þess að kom- ast í lifandi tengsl við annað fóik. En enginn skyldi halda að þar með sé allur vandinn leystur. Jafnvel ,,velferðarríkið“ getur ekki leyst þessi mjög svo persónulegu og margvíslegu vandamál. Virk þátttaka borg- aranna er frumskilyrði. Það er ekki hægt að rjúfa einangrun manns sem ekki vill sjálfur hjálpa til. Hér er drepið á atriði sem getur verið viðkvæmt mál. Ég á við það sem við köllum um- burðarlyndi. Ef við viljum eiga samskipti við annað fólk, verð- um við að sætta okkur við að það sé öðruvísi en við sjálf; við verðum að reyna að skilja hversvegna það er öðruvísi og taka því eins og það er. Sann- leikurinn er nefnilega sá, að oft á tiðum er meginorsök ein- manaleikans sú, að við viljum ekki eiga saman að sælda við fólk sem er öðruvísi en við. Þá viljum við heldur vera út af fyrir okkur: við einangrum okkur. Margir hafa aldrei reynt hve skemmtilegt og hugtækt það getur verið að kynnast náið mönnum sem eru ólíkir manní sjálfum. Það getur verið eins og könnunarferð þar sem margt óvænt og spennandi gerist á leið- inni: Hversvegna hugsar hún öðruvísi um stjórnmál og krist- indóm en ég? Hversvegna eyðir hann frístundum sínum svona gjörólíkt því sem ég geri? Hversvegna ala þau upp börnin sín öðruvísi en ég? Líf verður ekki til við það að tvennt eins, heldur tvennt ó- líkt, mætist. Þetta á ekki ein- ungis við í líffræðinni, heldur einnig í mannlegum og miklu víðari skilningi. Andlegt líf þróast við átök milli ólíkra hugsana og tjáningarforma. Persónuleiki mannsins þroskast af samskiptum við annarsltonar persónuleika, en vissulega ekki við það að einangra sig. Samfélag við aðra krefst um- burðarlyndis og hreinskilni. Það ætti að stofna „Lands- samband til baráttu gegn ein- angrun mannsins“ undir kjör- orðinu „líttu inn til nágrann- ans“ eða öðru því líku. I borgunum er það enn í dag almenn skoðun, að það sé fíní að hafa engin afskipti af ná- grönnum sínum. „Ég lifi kyrr- látu lífi og held mér út af fyrir mig, ég á ekkert saman við ná- grannana að sælda." s
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.