Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 33
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540 Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600 Gólfefna lausnir fyrir heimili og fyrirtæki www.bmarkan.is GERÐ AÐALUPPDRÁTTA VERKEFNA– OG BYGGINGASTJÓRNUN HAGKVÆMISATHUGANIR OG ÁÆTLUNAGERÐ UMSJÓN FRAMKVÆMDA ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA WWW.TOGT.IS togt@togt.is sími8933022 GERÐ AÐALUPPDRÁTTA VERKEFNA– OG BYGGINGASTJÓRNUN HAGKVÆMISATHUGANIR OG ÁÆTLUNAGERÐ UMSJÓN FRAMKVÆMDA ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA WWW.TOGT.IS togt@togt.is sími8933022 GERÐ AÐALUPPDRÁTTA VERKEFNA– OG BYGGINGASTJÓRNUN HAGKVÆMISATHUGANIR OG ÁÆTLUNAGERÐ UMSJÓN FRAMKVÆMDA ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA WWW.TOGT.IS togt@togt.is sími 893 3022 Þverholti 3 - Sími: 566-6612 FÓTAAÐGERÐASTOFA MOSFELLSBÆJAR Þjónusta við mosfellinga Aðsendar greinar - 33 Sem þingmaður og áður bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hér í bæ hef ég og mun áfram leggja áherslu á að álögum á íbúa sé haldið í lágmarki. Við búum í velferðarsamfélagi og það vil ég standa vörð um. Þess vegna eru skattar nauðsynlegir, til þess að standa straum af þeirri sameiginlegu velferð- arþjónustu sem við viljum veita. En á sama tíma er mikilvægt að kjörnir fulltrúar fari vel með fé íbúa sinna og tryggi að það sé vel nýtt. Það er og hefur verið grunnstefna Sjálfstæðis- flokksins. Þannig hefur það verið í fjölda ára að Mos- fellsbær, ásamt öðrum sveitarfélögum í Suð- vesturkjördæmi, hefur ekki innheimt hámarks- skatt af íbúum sínum. Í þessu kjördæmi hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í meirihluta í öllum sveitarfélögunum. En nú eru breyttir tímar hér í bæ. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum vann Framsókn mik- inn kosningasigur og myndaði meirihluta með Viðreisn og Samfylkingu. Sú breyting mun birtast íbúum Mosfellsbæjar strax í hærri sköttum þar sem sveitarstjórnin hefur nú ákveðið að innheimta hámarksút- svar og heldur uppi fasteignagjöldum. Þannig aukast álögur á íbúa Mosfellsbæjar umtalsvert strax á fyrsta ári þessa nýja meirihluta. Íbúar sjá strax hækkun fasteignagjalda en út- svarshækkun mun birtast okkur þegar skattaárið er gert upp. Í öðrum sveitarfélögum í Suðvest- urkjördæmi þar sem Sjálfstæðismenn eru enn í meirihluta er ekki innheimt hámarksútsvar og fasteignagjöld hafa verið lækkuð til að koma til móts við hækkun fasteignamats. Mosfellsbær sker sig úr og er kominn í sömu stöðu og Reykjavík þar sem álögur á íbúa eru meiri, enda eru sömu flokkarnir við völd í þessum tveimur sveitarfélögum. Við vitum öll hvernig fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er, slíkt má ekki gerast hér í Mosfellsbæ. Ég vil því brýna fyrir félögum mínum, Sjálf- stæðismönnum í bæjarstjórn Mosfellsbæjar, að halda áfram uppi vörnum fyrir skattgreiðendur hér í bæ. Áherslan á að vera að halda álögum í lágmarki og tryggja að skattfé sé vel nýtt í grunnþjónustuna en ekki í gæluverkefni. Ég vil svo brýna fyrir öðrum bæjarfulltrúum að hlusta á tillögur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Það hefði svo sannarlega komið sér betur fyrir heimilisbókhald Mosfellinga ef tillögum þeirra við fjárhagsáætlun 2023 hefði verið fylgt. Gleðilegt ár kæru sveitungar. Bryndís Haraldsdóttir Mosfellingar greiða hærri skatta Við gerð nýsamþykktar fjárhagsáætl- unar lögðu bæjarfulltrúar D-lista fram tillögu um hækkun á frístundaávísun- um til barna, ungmenna og eldra fólks í Mosfellsbæ. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti að vísa málinu til bæjarráðs og var til- laga fulltrúa D-lista samþykkt í bæjar- ráði á fundi þann 22. desember. Hækkun frístundastyrkja tekur gildi frá 1. ág- úst 2023 og verður frístundaávísun fyrir 1 barn kr. 57.000 og 65.000 fyrir 3 börn og fleiri. Frístundastyrkur fyrir eldri borgara verður kr. 11.000. Þessi hækkun tryggir að frístundastyrkir verða áfram með þeim hæstu í Mosfellsbæ af sveitar- félögum eins og undanfarin ár. Ég hvet foreldra og forráðamenn ungmenna og sem og eldri borgara í Mosfellsbæ að nýta frístundastyrkinn í þá fjölbreyttu íþrótta- og tómstunda- iðkun sem í boði er þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þátttaka í íþróttum og tómstundum er mjög mikilvæg fyrir okkur öll, lík- amlega, andlega og félagslega og í lýð- heilsubænum Mosfellsbæ geta allir aldurshópar fundið sína tómstund. Kynnið ykkur hvað er í boði og svo er bara að drífa sig af stað. Kær lýðheilsukveðja. Ásgeir Sveinsson, bæjarfulltrúi. Oddviti D-lista Mosfellsbæ. Frístundastyrkir fyrir ungmenni og eldri borgara

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.