Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 36

Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Eyja Elvarsdóttir fæddist í Mosfellsbæ 11. nóvember 2022, hún vó 16 merkur og var 55 cm á lengd. Foreldrar Eyju eru Elvar Magnússon og Klara Óðinsdóttir. Stóri bróðir Eyju heitir Óðinn og er á þriðja ári. einkunnarorð ekki ára- mótaheit Nú er nýtt ár gengið í garð og fólk komið á fullt með að setja sig aftur í réttar stelling- ar eftir rólegheitin sem fylgja jólunum. Líklegast eru mörg sem strengdu ára- mótaheit eða settu sér einhvers konar markmið fyrir nýja árið sem eiga að fleyta þeim lengra í lífinu og hjálpa þeim að nýta hverja mínútu í sólarhringnum. Líkamsræktarstöðvar eru yfirfullar í jan- úar og ekki að sjá óhollustu í innkaupa- kerrum landsmanna. Svona heldur fólk áfram út mánuðinn en fer þó að missa kjarkinn undir lok hans og oftar en ekki er það komið í sömu spor og fyrir allan hamaganginn. Svo eru önnur sem skipuleggja árið í þaula og eru búin að ákveða hvernig árið eigi að vera upp á hár þann fyrsta janúar. Þau sem þekkja eitthvað til raunhæfrar markmiðasetningar vita að það þarf að útlista nákvæmlega hvernig viðkomandi ætlar sér að ná settum markmiðum, annars er alveg eins hægt að sleppa því. Eins og við höfum þó fengið að upplifa síðustu ár er lífið langt frá því að vera fyrirsjáanlegt og tekur það stundum upp á því að taka krappa U-beygju. Líkt og með annað sem búið er að skipuleggja er auðvelt að láta svoleiðis brjóta sig niður og upplifa það að manni hafi mistekist á einhvern hátt. Þess vegna legg ég frekar til að fólk velji sér einkunnarorð fyrir árið í staðinn fyrir að strengja óljós áramóta- heit eða setja sér fastar skorður með hárnákvæmum markmiðum. Ein af mínum bestu vinkonum gerir þetta um áramótin og leyfir orðinu svo að fylgja sér í gegnum mánuðina sem geta verið sætir en líka ansi súrir. Með þessu er auðveldara að taka einn dag í einu og lifa í núinu – sem þykir svo mikilvægt í nútímanum. Hægt er að hafa orðið á bakvið eyrað og draga það fram þegar á því er þörf en það þarf alls ekki að stjórna lífinu né tilverunni. Orðið getur verið allt frá einföldu „já“-i yfir í eitthvað stærra og háfleygara eins og „mildi“, „gæðastund“ eða „ró“. Í lok árs er svo hægt að líta til baka og rifja það upp með tilliti til einkunnar- orðsins. ástrós hind Í eldhúsinu Heiða og Michele skora á Brand og Karólinu að deila næstu uppskrift í Mosfellingi Heiða Björg Tómasdóttir og Michele Rebora deila með okkur Mosfellingum að þessu sinni heimatilbúnu pasta úr kartöflum með basilíku-pestó, þjóðar- réttur Genova á Ítalíu. Gnocchi fyrir fjóra: • 1 kg af kartöflum (helst ekki mjölkenndar, t.d. bökunarkartöflur) • 1 egg • 250 g hveiti ca • 1 tsk salt ca Aðferð: Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og stappið vel saman. Stráið hveiti undir og yfir, gerið holu í miðjuna og leyfið að kólna smá stund. Stráið salti yfir og sprengið eggið í miðjuna. Hnoðið saman eins og deig. Bætið hveitinu saman við þar til deigið er hætt að klessast við fingurna. Rúllið í lengjur ca 1 cm í þvermál og skerið í ca 1,5 cm kubba. Þeir sem treysta sér í að fara alla leið, taka hvern kubb fyrir sig, þrýsta vísifingri og löngutöng niður í kubbinn á borðið og draga ákveðið að sér. Þannig snýr kubburinn upp á sig og myndar dæld, sem fangar betur pestóið. Annars bragðast gnocchi eiginlega alveg eins sem kubbar. Stráið smá hveiti yfir kubbana svo þeir klessist ekki saman. Látið vatn sjóða í stórum potti, helst 10 lítra eða meira. Bætið ca 10 g af salti per lítra af vatni og látið suðuna koma upp aftur. Hendið gnocchi út í vatnið þegar það bullsýður og hrærið varlega með fiskispaða. Hafið svo lokið á og látið suðuna koma upp aftur. Þá eru gnocchi tilbúnir á ca 3-5 mín. Sigtið og setjið út í pestóið. Hrærið varlega og stráið rifnum Parmigiano Reggiano (parmesan) yfir að vild. Pestó - frá grunni! • 2 búnt af ferskri basilíku frá Ártanga • 1 hvítlauksgeiri (fjarlægja kjarnann) • 1 dl ca af furuhnetum • 2-3 dl Parmigiano Reggiano (rifinn) • 1 skeið jómfrúarólífuolía • 1 tsk salt Skolið basilíkuna í köldu vatni og setjið í blandara ásamt hvítlauksgeiranum, furuhnetunum, saltinu og ólífuolíunni. Hrærið í smá stund og bætið svo parmesan við þar til pestóið er orðið að mjúku kremi. Blandið saman við gnocchi. PS. Gnocchi er borið fram NJOKKÍ. Verði ykkur að góðu! Gnocchi di patate al pesto hjá heiðu og Michele - Heyrst hefur...36 j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is aftureldingarvörurnar fást hjá okkur heyrst hefur... ...að Ísólfur rekstrarstjóri Hlégarðs til síðustu átta ára, sé hættur. ...að Dorrit hafi dansað dátt við álfabrennuna á þrettándanum. ...að forsala og borðapantanir fyrir risaþorrablót Aftureldingar fari fram á Barion á föstudaginn kl. 17. ...að framhaldsskólinn í Mosó sé hættur að veita viðurkenningar fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófi. ...að Mosfellingar eigi landsliðsmann á HM í handbolta en Elvar Ásgeirsson kom sterkur inn í hópinn á síðasta stórmóti. ...að Hannes sé búinn að segja af sér sem formaður handknattleiksdeild- arinnar. ...að fjöldi minka hafi sloppið úr minkabúinu í Helgafellsdal og faraldurinn sé farinn að minnka. ...að Sif Sturlu og Lukka séu farnar að vinna á bæjarskrifstofu Mosfells- bæjar. ...að Siggeir íþróttakennari hafi verið valinn þjálfari ársins í Garðabæ. ...að Linda Udengård, framkvæmda- stjóri hjá Mosfellsbæ, sé að hætta störfum. ..að Alda og Siggi Hansa séu að fara halda svakalegt 100 ára afmæli. ...að Búbblubíllinn sé búinn að boða komu sína á Þorrablót Aftureldingar. ...að Guðbjörg og Ingvar séu að fara að flytja til Ítalíu. ...að Andrés og Ragga séu að fara detta í ömmu- og afahlutverkið á árinu. ...að Ásta Kristín hafi unnið aðalvinn- inginn í áramótabingói Barion. ...að Tómas umhverfisstjóri sé búinn að segja upp. ...að Svefn og heilsa sé með risa lagersprengju í Völuteigi þar sem fyrirtækið er með outlet. ...að Geiri Slææ sé fertugur í dag. ...að gamla Kiwanishúsið í Leirvogs- tungu sé til sölu. ...að Afturelding mæti KA fyrir norðan í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í handbolta. ...að hægt sé að nálgast Fréttablaðið á bókasafninu, en blaðinu er ekki lengur dreift í hús. ...að skotsvæðinu á Álfsnesi verði nú lokað eftir nýjasta úrskurð. ...að Harpa Georgs og Hlynur hafi gift sig um síðustu helgi. ...að borholan MG-29 í Reykjahlíð hafi brunnið yfir hátíðarnar. ...að Hilda Allans hafi farið 115 sinnum á Esjuna á síðasta ári. ...að Sína hafi orðið sjötug í vikunni. ...að ilmsánan byrji aftur í Lágafells- lauginni í næstu viku. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.