Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 29

Bókasafnið - 01.01.2001, Qupperneq 29
sóknastofnana sem fjármagnaðar eru af hinu opin- bera. Verkefninu var hleypt af stokkunum árið 1998 af finnska menntamálaráðuneytinu og markmið þess var að auka aðgengi að rafrænum upplýsingum, bæta aðgengi að Netgögnum og þróa nýtt notendaviðmót sem gæti veitt aðgang að mismunandi gögnum og gagnategundum sem staðsett eru á mismunandi stöðum. Rafræqa bókasasafnið tek- ur til rafrænna tímarita, gagna- banka og tölvu- væddra spjald- skráa bókasafna, auk eldra efnis sem fært er yfir í stafrænt form. Þar sem eitt af aðalmarkmið- um FinELib er að bæta aðgang vís- indamanna að upplýsingum var fljótlega hafist handa við að gera rannsóknir og kannanir á því hvað menn nota helst. Gerð var spurningakönnun árið 1998 til að undirbyggja ákvarðanatöku um hvaða efni skyldi hafa forgang þegar keyptur yrði aðgangur að rafrænum gögnum. í könn- uninni kom fram að mikill meirihluti notenda vildi fá aðgang að texta erlendra tímarita og settu menn það því sem algeran forgang í uppbyggingu rafræna rann- sóknarbókasafnsins. Næst röðuðu menn aðgengi að gagnasöfnum svo sem INSPEC og BIOSIS, og í þriðja sætu komu fmnsk tímarit. í fjórða sæti kom svo Science Citation Index gagnasöfnin. í könnunum kom líka í ljós að þeir sem mest nýta sér rafrænu gögnin em ungir vísindamenn sem nota efnið frá sínu eigin skrifborði. Á grundvelli þessara niðurstaðna var frá upphafi lögð áhersla á að semja um aðgang að gagnasöfnum, rafrænum tímaritum og gæðaupplýsingum í rafrænu formi því þannig var talið að tryggja mætti að ungir og hugmyndaríkir vísindamenn hefðu besta hugsan- lega aðgang að þeim upplýsingum sem kæmu þeim að gagni. Strax árið 1999 höfðu finnskir vísindamenn aðgang að 70 gagnasöfnum og um 3000 tímaritum þar sem hægt var að leita í heildartextanum. Sett var á oddinn að notendur fyndu sem fyrst fyrir hag- kvæmni FinELib og þeir skyldu njóta góðs af þeim fjármunum sem í það voru lagðir. Stjórnun Þróun og rekstur FinElib er í höndum Háskólabóka- safns Helsinki og CSC (Center for Scientific Com- puting) sem sér um tæknilegu hliðina. í Finnlandi er það FUNET- finnska háskóla- og rannsóknanetið sem tengir saman alla háskóla og rannsóknarstofnanir landsins. FUNET kemur einnig til með að vera burð- arásinn í FinElib. Auk þess er til staðar sérstakt bóka- safnakerfi, LINNEA, sem einnig myndar hluta af landskerfinu. Öll rannsóknarbóka- söfn í Finnlandi nota sama bóka- safnskerfið og ár- ið 2000 var tekin ákvörðum um að kaupa Voyager sem sameiginlegt kerfi fyrir öll finnsk háskóla- og rannsóknarbóka- söfn. Nýja kerfið á að vera komið í gagnið snemma árs 2001. Árið 2000 varð FinELib hluti af venjulegri starf- semi Háskóla- bókasafnsins. Sérstakt þjónustusvið fyrir rafræna bókasafnið var sett upp og jafnframt voru settir upp þrenns konar samvinnuhópar sem leiða framgang safnsins. Fin- ELib er stýrt af Stjórnarhópi (Ledningsgrupp) sem sér um stefnumörkunina, tekur ákvarðanir um innkaup á efni (eftir tillögum frá öðrum) og undirbýr fjárhags- áætlun sem síðan er lögð fyrir menntamálaráðu- neytið. í þessum hópi eru fulltrúar háskóla og rann- sóknastofnana og eru fulltrúarnir skipaðir af menntamálaráðuneytinu til þriggja ára í senn. Annar hópur kallast „Konsortiegruppen" og sér um að koma með tillögur að nýjungum og forgangsröðun til Stjórnunarhópsins. Auk þess eru starfandi nokkrir sérfræðihópar, einn frá hverju sérsviði, sem for- gangsraða því hvaða efni skuli keypt innan þeirra sérsviðs. Á hverju ári eru skipulagðir FinELib-dagar þar sem öll aðildarsöfnin geta komið með tillögur og rætt málin varðandi stefnumörkun og forgangsröð- un. Fjármögnun FinELib var upphaflega fjármagnað af finnska ríkinu sem þróunarverkefni og fékk 18 milljónir finnskra marka (216 milljónir íslenskra króna) til ráðstöfunar á hverju ári fyrstu árin. Frá árinu 2000 var það ekki talið „verkefni'1 lengur heldur fær safnið nú fjárveitingu frá menntamálaráðuneytinu í samræmi við þær áætlanir sem Stjórnarhópurinn leggur til. í upphafi voru settar reglur um hvernig staðið yrði BÓKASAFNIÐ 25. ÁRG. 2001 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.