Á vakt fyrir Ísland - jun 2018, Qupperneq 27
Á vakt fyrir Ísland 27
Það er ekki fyrr en á síðustu þremur
mánuðum annars árs sem farið er
í starfsnám á sjúkrabíl. Þriðja árið
samanstendur af starfsnámi innan
spítala og utan, í bland við enn meiri
„sérvisku“ í sjúkdómum sérstakra
hópa, t.d. í barnasúkdómum, kven-
sjúkdómum og öldrun. Og svo er
auðvitað ritgerðarsmíð að lokum.
Nú þegar er búið að birta mörg
áhugaverð BS verkefni og allt stefnir
í að námið muni verða grundvöllur
fyrir margar flottar rannsóknir innan
utanspítalaþjónustu í framtíðinni, því
eins og við vitum sem við þetta störf-
um þá er af nógu að taka. Að auki
eru ýmis utanskóla námskeið kennd
yfir allar annirnar, má þar nefna
námskeið á borð við rötun, fjarskipti,
straumvatnsbjörgun, fyrstu hjálp við
sjálfsvígstilraunir, PLIVO forgangs-
akstur (fjórar vikur) CBRNE o.fl. Í
ofanálag fá nemendur ágætis innsýn
í réttarmeinafræði, lögfræði og starf-
semi tilvonandi samstarfsaðila á borð
við lögreglu, slökkvilið, norska herinn
og norsku sjúkraþyrlurnar.
Vegna þess hve margir hagsmuna-
hópar komu að gangsetningu þessa
náms finnur maður að það eru miklar
vonir bundnar við það og hvað allir
eru tilbúnir að styðja við það. Hvort
heldur sem þessir aðilar koma úr
mennta- eða heilbrigðiskerfinu.
Kennarar og fyrirlesarar eru „top of
the line“ fólk sem er framarlega í sínu
fagi með mikla reynslu og margir þeirra
eru að vinna að flottum verkefnum
á borð við Slagsjúkrabílinn, hönnun
og endurhönnun á Lucas vini okkar
og fleira í þeim dúr.
Alþjóðlegt samstarf
OsloMet er hluti af sístækkandi
tengslaneti hvað varðar menntun í
utanspítalaþjónustu og einn angi af
því er að okkur sem nemendum
stendur til boða að taka hluta af verk-
náminu sem skiptinám í löndum á
borð við England, Svíþjóð, Pólland
og Finnland.
Danir, Svíar og Finnar hafa nú þegar
beðið HIOA um að vera sér innan
handar við að koma á laggirnar
samskonar námi í sínum löndum.
Markmið skólans er einfalt, þ.e. að
vera leiðandi á heimsvísu.
Inntökuferlið
Inntökuskilyrðin eru í grunninn
stúdentspróf eða samsvarandi ásamt
þrekprófi sem þarf að standast.
Einkunnir, aldur og reynsla leggst
svo á vogaskálarnar. Þetta er nánar
útlistað á heimasíðum skólanna. Öll
kennsla fer fram á norsku en stór
hluti námsefnisins er á ensku. Fyrsta
árið meðan ég var að komast betur
inn í norskuna fékk ég undanþágu
og skilaði prófum á ensku. Hver önn
kostar um 12 þúsund ISK (háð gengi)
og annar kostnaður er skólabúningur
sem kostar um 26 þúsund ISK.
Fyrir námslok þarf maður að hafa
tekið C1 ökuréttindi og kode 160
forgangsakstursnám. Þó að margir
sem sækja um námið hafi ýmiskonar
reynslu af heilbrigðisþjónustu þá er
námið þannig uppbyggt að ef maður
kemst í gegnum inntökuferlið þá þarf
ekki annað en áhuga og vilja til að
ná árangri. Mín reynsla er sú að það
hafi ekki verið verra að hafa aðra sýn
og öðruvísi fyrri reynslu en flestir í
hópnum því eins og Norðmaðurinn
segir þá kom ég með marga snaga
til að hengja á, ég er bæði meðvitað
og ómeðvitað með margar ósvaraðar
spurningar sem fást svör við eftir því
sem líður á námið.
Auknir möguleikar
Til viðbótar því að standa mjög sterkt
þegar kemur að því að fá vinnu á
sjúkrabíl hérna í Noregi þá opnast
líka ýmis tækifæri sem eru kannski
ekki ennþá til staðar heima. Það er
gaman að sjá að þeim 30 nemend-
um sem útskrifuðust síðasta vor er
tekið opnum örmum í atvinnulífinu
og dæmi eru um að deildir innan
spítala hafi uppfært skipurit sín og
ferla til að skapa pláss fyrir þennan
nýja vinkil innan heilbrigðisþjónust-
unnar. Læknavaktir, bráðamóttökur,
björgunarskip, sjúkraflugvélar, ferjur
og borpallar eru dæmi um raunhæfa
framtíðarvinnustaði. Til að fá stöðu á
sjúkraþyrlu hjá norska luftambulanse
þá er BS orðið eitt af inntökuskil-
yrðunum. Í því menntasamfélagi sem
við búum við í heiminum í dag er
þessi gráða líka prýðislykill að áfram-
haldandi menntun á þessu sviði eða
öðrum og e.t.v. aðkoma að frekari
rannsóknum í faginu eða heilbrigðis-
vísindum.
Mínir þankar um námið
Eitt af því sem mér finnst standa upp
úr hvað varðar þetta nám er hversu
heildstætt það er. Það endurspeglast
í námsskránni hve margir hagsmuna-
aðilar komu að gerð námsins.