Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 10

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 10
10 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN Ég vil ekki teikna upp einhverja tímalínu þar sem ég skrifa um allt sem fór úrskeiðis þannig ég dreg þetta saman: Yfirkjörstjórnin í Norðvesturkjördæmi byrjaði að endurtelja sjálf, ekki talningarfólkið sem gat ekki staðfest að öll atkvæði hafi verið endurtalin, kjörgögnin voru ekki innsigluð, kjörkassarnir voru geymdir í sal þar sem mikill umgangur var um nóttina, lögreglan gat ekki útilokað að ekki hafi verið átt við kjörgögnin, Kjörbréfanefnd fann vitlaust flokkuð atkvæði, Kjörbréfanefnd endurtaldi ekki öll atkvæðin og að lokum: Formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi var einn með óinnsigluðum kjörgögnum í hálftíma. Þetta eru margir vankantar á meðhöndlun kjörgagna. Sumt af þessu er ólöglegt eins og kom í ljós þegar lögregla sektaði Yfirkjörstjórnina í NV. Kosningalög voru því brotin við þessa talningu og alla framkvæmdina sjálfa. Þá tók Kjörbréfanefnd Alþingis við málinu sem átti að rannsaka framkvæmdina og mögulega komast að þeirri niðurstöðu að talningin ætti ekki að standa, enda var vafi um vilja kjósenda. Fundirnir voru margir og langir hjá Kjörbréfanefnd og fór ég meira að segja fyrir einn fund vegna kæru minnar á kosningunum. Ég hafði alltaf hugsað mér að þetta yrði opinn fundur þar sem ég var með góðan rökstuðning og góða framsögu en í ljós kom að fundurinn hafi ekki verið opinn. Ég hefði þó mátt biðja um það en það vissi ég ekki vegna lélegs upplýsingaflæðis nefndarinnar til almennings. Það voru margir vankantar á öllu ferlinu í kringum talningarmálið. Hvort sem það var talningarferlið sjálft, breytta niðurstaðan eða atkvæðagreiðslan á þingi. Atkvæðagreiðslan á Heimatilbúinn Daginn eftir síðustu alþingiskosningar hófst endurtalning, sem talin var ekki eiga sér stoð í lögum enda engin heimild fyrir henni - sem gjörbreytti niðurstöðum kosninga. Fimm jöfnunarþingmenn duttu út, fimm aðrir komu inn í staðinn og samsetning þingmannahópsins í Norðvesturkjördæmi breyttist.

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.