Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 12

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 12
12 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN i: Kassarnir eru 36 og var n í flestum tilfellum 30-40 manns. 2.5-3.33% eru því í flestum tilfellum 1 svarandi, ≈ 1 svar. Þegar Svarendur eru einstaklega fáir er það tekið fram. Hvað er Stjórnmálafræðinema Gallupið? Þrjár kannanir voru lagðar fyrir nemendur í stjórnmálafræði með reglulegu millibili yfir önnina. Skýringalykill til vinstri hjálpar við að lesa úr myndunum. Markmiðið var að komast að því hvar nemendur standa í ýmsum hitamálum sem og að taka saman skemmtilega demógrafíska fróðleiksmola um þá. Sumt kom á óvart en annað var algjörlega hægt að sjá fyrir! Til dæmis eru Samfylkingin, svo Píratar og Viðreisn vinsælustu flokkarnir meðal stjórnmálafræðinema um þessar mundir. Meira en 75% svarenda sögðust vera líklegir til að kjósa þá fyrir (þákomandi) kosningarnar á síðasta ári. Einnig stefna undir 50% okkar á að gerast þingmenn einn daginn og rétt yfir 52% okkar erum hunda- frekar en kattamanneskjur (réttilega). Áhugaverðast finnst mér að nákvæmlega helmingur nemenda þykir sögulega nafn tímaritsins “Íslenska Leiðin” gott nafn og hinum helmingnum finnst vera kominn tími til að nafninu sé breytt. Landsbyggðin og borgarbörnin oftast sammála Spurt var hvort nemendur væru frá höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni til að forvitnast hvort einhver skýr munur fyndist milli hópanna tveggja. Niðurstöður sýndu þvert á móti og voru hlutföllin nánast eins í öllum spurningum milli hópanna. Þau eru, samkvæmt Gallupinu, álíka líkleg til að t.d. vilja verða þingmenn, vera trúuð og mikið kaffidrykkjufólk, sem og að vera jafn líkleg til að nota nikótín til að þrauka langan skóladag. Mér til mikillar gleði erum við öll mikil jólabörn. En helsti munurinn reyndist vera sá að borgarbörn voru meira opin fyrir þeirri hugmynd að jöfnunarsæti Alþingis ættu einnig að vera notuð til að jafna kynjahlutfall á Alþingi með því að forgangsraða kyninu sem hallar á, og mun líklegri til að hafa tekið þátt í einhverskonar frjálsum félagasamtökum á síðasta ári. Þrátt fyrir að stundum komi upp heitar umræður í tímum, líkt og um Evrópumálin, virðast stjórnmálafræðinemendur eiga mikið sameiginlegt, meira en þau kannski halda. Skýring Kassar Kjartan Ragnarsson, ritstjórn Stjórnmálafræðinema Kristni 21.3% Ásatrú 2.8% Utan safnaðar 13.6% Trúlaus 62.3% Ert þú í einhverju trúfélagi eða trúuð/trúaður? Nei 58.3% Já 41.7% Þarf að kjósa aftur í Norð-vestur kjördæmi? (14. október) Þarf að breyta 50% Flott nafn 50% Er "Íslenska Leiðin" gott nafn á tímariti stjórnmálafræðinema eða ætti að breyta því?

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.