Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 21

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 21
21ÍSLENSKA LEIÐIN TÍMARIT STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMA ÍSLENSKA LEIÐIN með og á móti! Það er ekkert leyndarmál að störf hins opinbera eru nokkuð umdeild í dag og hafa verið í dágóða stund. Sumar stofnanir eru gagnrýndar fyrir ákvarðanatökur þegar kemur að hinu og þessu og jafnvel hvernig þær eru reknar í heild sinni. Nokkrar opinberar stofnanir eru einfaldlega gagnrýndar fyrir tilvist sína og þrátt fyrir að þær séu ekki margar þá er ein ákveðin sem er ekki sérlega vinsæl meðal aktívista. Hin eina sanna Útlendingastofnun! Við í Ritstjórn höfum þó hvorki neitt slæmt né gott að segja og þess vegna fengum við tvo reynslumikla einstaklinga til okkar að tjá sig um Útlendingastofnun og hvað þeim finnst um hana almennt. Þær Semu Erlu Serdar (stjórnmála- og evrópufræðingur, ), sem mun mæla gegn stofnuninni, og Þórhildi Ósk Hagalín (stjórnmálafræðingur, upplýsingafulltrúi Útl. Stofn.) sem mun mæla með henni. Með þessum hætti geta þeir sem ákveða að lesa þá ritsnilld sem Íslenska Leiðin er, myndað sér skoðun um Útlendingastofnun með sjálfstæðum hætti.

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.