Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 24

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 24
24 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN Félagslífs Stjórnmálanemar hittust á Stúdentakjallaranum þar sem kvikmyndin Milk var sýnd. Kvikmyndin var ábyggilega góð en flest voru þó spenntari fyrir því að spjalla enda mikil þörf á félagslegri útrás. Á miðvikudeginum í nýnemavikunni var haldið Kahoot í Lögbergi fyrir stjórnmálafræðinemana. Þar var nemendafélagið kynnt og farið yfir dagskrá félagslífsins fyrir haustönnina. Eftir kahoot leikinn var aftur haldið á Stúdentakjallarann og sumir enduðu kvöldið á Miami bar á Hverfisgötu. Á föstudeginum var ýmislegt að gerast. Viðburður Ungra umhverfissinna var haldinn í Norræna húsinu þar sem verkefni þeirra Sólin var kynnt. Síðar um daginn hélt Politica pallborðsumræður þar sem fulltrúar flokkanna í kosningabaráttunni ræddu málefni stúdenta. Um kvöldið var haldið partý í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni. Þar var hægt að sleppa sér í góðum félagsskap eftir fyrstu skólavikuna. Þeir sem voru á staðnum muna líklegast best eftir karaoke stemningunni sem magnaðist þegar líða fór á kvöldið. Loks eftir langa bið hittust nemar í stjórnmálafræði aftur í persónu, klárir í annan skólavetur. Þar sem nýnemar haustsins 2020 höfðu lítil sem engin tækifæri að taka þátt í félagslífinu á fyrsta ári sínu fengu þeir að vera með í nýnemavikunni þetta skólaárið. 30. ágúst 01.sept 03. sept

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.