Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 25
25ÍSLENSKA LEIÐIN TÍMARIT STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMA
ÍSLENSKA LEIÐIN
Viku fyrir Alþingiskosningar fóru fram pallborðsumræður á Stúdentakjallaranum í boði Politica og
Stúdentaráðs. Þangað mættu ungir fulltrúar flokkanna sem buðu sig fram til þings. Mikil stemning
myndaðist á kjallaranum enda Happy hour í gangi og áhugaverð málefni til umræðu. Skipuleggjendur
viðburðarins eiga skilið hrós fyrir rafræna hjólið sem var notað til að velja spurningar af handahófi,
það var frumleg og skemmtileg lausn.
Kosningarnar til Alþingis fóru fram laugardaginn 25. sept. Um kvöldið var haldin kosningavaka í
boði Politica og Stúdentaráðs sem heppnaðist afskaplega vel. Þangað mættu stjórnmálafræðinemar
ásamt öðrum háskólanemum, spenntir að ræða málefni líðandi stundar. Mikil fagnaðarlæti brutust
út þegar stjórnmálafræðinemarnir sáu kennara sína birtast á skjánum sem stálu klárlega senunni á
kosningavöku RÚV. Að lokum má ekki gleyma að fréttamenn RÚV kíktu einnig við á stúdentakjallaranum
til að taka stöðuna á stjórnmálafræði nemunum.
Í byrjun október var komið að því að halda hagstjórnardaginn heilaga sem er byggður á samstarfi
Politica og Ökonomiu nemendafélagi hagfræðinema. Keppt var í eftirfarandi greinum: körfubolta,
kubbi, reipitogi og brennó. Stjórnmálafræðinemar unnu kubbinn og reipitogið en hagfræðinemar
unnu sigur í býtum í körfu og brennó. Samkvæmt heimildum er sigur hagfræðinema í brennó
umdeildur þar sem hagfræðinemarnir voru fleiri og því með fjölmennara lið. Um kvöldið var haldið
sameiginlegt partý þar sem nemarnir blönduðu geði. Þá var keppt í beer pong, flip cup og limbó til að
útkljá sigurvegara hagstjórnardagsins. Hagfræðinemarnir sigruðu limbóið og voru þar með titlaðir
sigurvegarar hagstjórnardagsins 2021.
Í lok október var haldið sameiginlegt Hrekkjavöku partý með félagsfræði, félagsráðgjöf, mannfræði og
þjóðfræði. Gestirnir voru hvattir að mæta í búning þar sem verðlaun voru í boði fyrir besta búninginn.
Stjórnmálafræðinemarnir stóðu fyrir sínu og mættu í skemmtilegum og frumlegum búningum. Boðið
var upp á fljótandi veitingar og snakk en það sem sló mest í gegn var líklega myndaveggurinn þar sem
gestir gátu tekið mynd af sér og vinunum.
Eftir langa prófatíð var komið að próflokafögnuðinum. Meðlimir Politica hittust og fögnuðu því að
önninni væri loksins lokið. Þar var farið í pakkaleik og stjórnin skellti í heitt kakó handa öllum lýðnum.
Stemningin var afar jólaleg og kósý.
16. sept
25. sept
08. okt
29. okt
17. des
Þórhildur
Kristbjörnsdóttir,
ritstjórn