Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 28
28 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022
ÍSLENSKA LEIÐIN
Í KU LEUVEN
Sumarið leið hratt og allt í einu var ég stödd í bæ
sem ég átti eftir að búa í næstu mánuði. Lífið í
Leuven er svo sannarlega ljúft. Maður umgengst
nánast bara stúdenta og stemmningin í bænum
er róleg og þægileg, nema á prófatíma en þá eru
allir smá stressaðir. Ég leigði litla íbúð með sér
eldhúsi og baðherbergi en það er mjög einfalt að
skrá sig á lista fyrir stúdentaíbúðir eða herbergi
þar sem stúdentar búa í næstum hverju húsi í
bænum. Þegar maður gengur um bæinn þá eru
skilti merkt K fyrir KU Leuven á öðru hverju húsi.
Það þýðir að þar er annað hvort stúdentaíbúð
eða skólinn sjálfur en skólinn er dreifður um
allan bæinn. Einnig er Stella Artois brugghúsið í
bænum og er hægt að fara í túr um brugghúsið
sem ég gerði. Það var mjög áhugavert og hristi
aðeins upp í hversdagsleikanum. Belgía er þekkt
fyrir brugghúsin og bjórinn sem hefur standist
undir þeim væntingum. Leuven er til dæmis
með sinn eigin bjór sem heitir Leffe en mér
finnst gamla góða Stellan alltaf hitta í mark.
Bjórinn er þó mjög sterkur miðað við íslenskan
bjór. Því ráðlegg ég öðrum að gera ekki sömu
mistök og ég, sem var að sleppa því að lesa hver
áfengisprósenta bjórsins væri – sem endaði
alltaf illa.
Leuven er lítill bær austan megin við Brussel
í flæmskumælandi hluta Belgíu. Hann er afar
persónulegur og lítill, og það tekur einungis um
20 mínútur að fara á hjóli frá A til Ö. Katholieke
Universiteit Leuven, eða KU Leuven eins og hann
Ég sótti um skiptinám í miklum flýti, hafði samt alltaf ætlað mér í
skiptinám en ekki alveg svona snemma í náminu. Ég var búin með
eina önn í stjórnmálafræði í HÍ þegar ég hugsaði með mér: „ef ekki
núna, þá hvenær?“. Eftir það gerðust hlutirnir mjög hratt og allt
í einu var stefnan sett á Belgíu í skólann Katholieke Universiteit
Leuven í bænum Leuven haustönnina 2021.