Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 29

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 29
29ÍSLENSKA LEIÐIN TÍMARIT STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMA ÍSLENSKA LEIÐIN Í KU LEUVEN er alltaf kallaður, er frábær akademískur skóli. Skólinn er einn af þeim bestu í Evrópu. Til að vera nákvæm, þá er hann númer 42 í heiminum (samkvæmt Times Higher Education stuðli) sem er sturlað. Námsmatið og áfangarnir eru öðruvísi en við eigum að venjast í stjórnmálafræðinni heima á Íslandi og eru flest allir áfangarnir með 100% lokapróf. Ef lokaprófið er ekki 100% þá er það 90% og þau 10% sem eftir eru gilda fyrir mætingu. Þetta hefur í för með sér að skólinn er mjög krefjandi og stöðug áhersla lögð á að þegar þú ert í fríi, eins og jólafríi eða páskafríi, þá er það ekki frí heldur tími sem nemendur eiga að nýta til að læra. Þrátt fyrir það er námið mun umfangsmeira og nær alheimspólítikinni en heima. Til dæmis tók ég áfanga sem heitir Peace Research and Conflict Management og kennarinn þekkir persónulega Frances Stewart sem kom fram með kenninguna horizontal inequalities sem er kennd í þessum sama áfanga. Þetta sýnir hvað námið erlendis er mun nær hinum alþjóðlega akademíska heimi hvað varðar stjórnmálafræði og verð ég alltaf þakklát fyrir þá þekkingu sem þessi skóli gaf mér. Belgía er frekar miðsvæðis í heiminum og því ótrúlega auðvelt að taka lest, rútu eða flug til annarra landa í Evrópu. Ég ferðaðist til dæmis til Amsterdam og Dublin sem var skemmtileg viðbót við skiptinámsdvölina. Þetta er mögnuð upplifun og ég fékk að kynnast ótrúlegasta fólki frá ýmsum heimshornum. Þeim fannst hins vegar magnað að hitta manneskju frá Íslandi og spurðu mig um annaðhvort eldgos eða norðurljós, jafnvel bæði. Flestir sögðu að ég væri fyrsta íslenska manneskjan sem þau höfðu hitt, sem opnaði augu mín um hvað við erum einangruð og að heimurinn er svo miklu stærri en „litla Ísland“. Ég hvet alla til að skoða skiptinám, jafnvel framhaldsnám í útlöndum eða bæta við sig bachelor gráðu erlendis. Þrátt fyrir að skiptinámið sé stutt í samhengi við allt lífið þá hafði það svo miklu meiri áhrif á mig en mig grunaði. Ég þekki, skil og veit meira núna og þessa þekkingu hefði ég ekki getað fengið annars staðar. Ég lærði mikið og kem svo sannarlega reynslunni ríkari heim. Ég lærði ekki síst meira um sjálfa mig. Það er krefjandi að flytja til útlanda, hvort sem maður fer einn eða ekki, þetta er áskorun fyrir alla. Að flytja ein í miðjum heimsfaraldi í land sem ég hef aldrei komið til áður var ógnvekjandi en um leið svo spennandi. Ég verð ævinlega þakklát fyrir þessa reynslu og Háskóla Íslands fyrir að bjóða upp á skiptinám og að veita alltaf stuðning ef ég þurfti á honum að halda. Skiptinámið markaði sannarlega ekki lokin á mínum stjórnmálafræðiferli heldur upphafið. Arna Dís Heiðarsdóttir, stjórnmálafræðinemi & skiptinemi í Leuven

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.