Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 36

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 36
36 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, 19 ára, Píratar. Hvers vegna valdir þú þann flokk? Það var frekar mikil hugsun á bak við það en alltaf þegar ég var í loftslagsverkföllunum og í einhverjum aktívisma þá voru Píratar alltaf sá flokkur sem mér fannst hlusta mest á það sem við höfðum að segja og komu ekki fram við okkur eins og börn. Píratar hafa einstaka sýn á stjórnmál og hvernig þau leita lausna við vandamálum í dag finnst mér frábært og aðeins öðruvísi en aðrir flokkar eru að gera í dag. Sem ung manneskja í stjórnmálum, hvernig er komið fram við þig? Er komið öðruvísi fram við þig miðað við eldri kollega þína? – Jájá yfirleitt, eins og maður býst við. Áður en ég fór á þing og við vorum að funda við stjórnmálaflokka var ekki tekið mark á manni eins og er kannski gert í dag. Mér finnst þó mjög gaman að sjá hvað margir þingmenn voru spenntir fyrir því að fá yngra fólk á þing þegar við Lenya komum inn. Það eru auðvitað flestir á þingi sem vilja bara það besta og því get ég sagt að þetta hafi yfir höfuð verið mjög góð upplifun. Hvað gerir þú fyrir utan stjórnmálin? Ég myndi ekki segja að stjórnmál væru helsta áhugamál mitt en mun frekar eru þau leið til að ná lokamarkmiði. Ég er mikið uppi á fjöllum en ég tók árspásu frá námi og fór í fjallamennskuna bæði á Flateyri og Höfn í Hornafirði. Þar kynntist ég alls konar útivist eins og fjallaskíðum, ísklifri og kæjaki en ég endaði á að vinna við fjallaleiðsögn sem var mjög skemmtilegt og mig langar gjarnan að gera meira af því. Síðan er ég í fullu námi þar sem ég geri alls konar fyrir utan skóla á borð við samkvæmisdans, fjallamennskuklúbburinn, model U.N. og tónlist. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Úff maður veit ekki. Ég gæti séð mig fyrir mér vonandi á þingi og/eða vinna í tækni tengd loftslagsmálum. Ég vil alltaf vera gera eitthvað fjölbreytt og skemmtilegt, það er mikilvægt að láta ekki vinnuna skilgreina sig að mínu mati. Hvað er þitt helsta afrek eða stoltasta stund? Líklegast söfnun undirskrifta fyrir nýja stjórnarskrá síðasta haust (2020) þar sem við náðum að byggja upp hreyfingu sem barðist fyrir okkar gildum. Mér finnst ég geta verið stolt af sjálfri mér og öllum sem tóku þátt í því fyrir að fá fólk til að hugsa um þessi mál. Það var mikið af alls konar fólki sem kom saman og sinnti alls kyns verkefnum til að gera þetta að raunveruleika. Mér fannst samvinnan og skipulagið frábært. Hvaða skilaboðum viltu koma til stjórnmála- fræðinema? Bara byrja að taka þátt! Við getum alltaf lært af fyrri mistökum og orðið betri. Fyrsta skrefið er bara að byrja taka þátt og hafa áhrif vegna þess að það eru mikið af málum í dag sem hafa gríðarlega mikil áhrif á okkur. Þó maður viti ekki allt, ég veit ekki allt og enginn í kringum mig veit allt en það þýðir ekki að við getum ekki reynt að gera heiminn betri. Í versta falli gerum við mistök en það verða þó ný mistök til að læra af!

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.