Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 37
37ÍSLENSKA LEIÐIN TÍMARIT STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMA
ÍSLENSKA LEIÐIN
Hvers vegna valdir þú þann flokk?
Ég kynntist pólitík innan háskólans þegar
ég var í stjórn Röskvu. Þar kynntist ég fólki í
Samfylkingunni og fékk þar að kynnast þeim
hugsjónum og hugmyndum innan flokksins. Það
var því bara í starfinu í stúdentapólitík sem ég
komst að því að Samfylkingin höfðaði mest til
mín og minna skoðana.
Sem ung manneskja í stjórnmálum, hvernig
er komið fram við þig? Er komið öðruvísi
fram við þig miðað við eldri kollega þína?
Nei ég finn ekki fyrir neinni sérstakri framkomu
við mig. Mér finnst allir innan flokksins vera
góðir og málefnalegir við mig og láta það ekki
breyta að ég sé eitthvað yngri.
Hvað gerir þú fyrir utan stjórnmálin?
Fyrir utan kosningastörf þá er ég formaður Ungra
Jafnaðarmanna í Kópavogi og einnig varaforseti
Röskvu en fyrir utan öll stjórnmál þá er ég í
laganámi hérna í HÍ.
Hvar sérðu þig eftir 10 ár?
Mér finnst líklegt að ég verði ennþá eitthvað í
pólitík, hvort sem það er í bæjarpólitík áfram í
Kópavogi eða á stærra sviði. Mig langar alla vega
að halda mig við pólitíkina.
Hvað er þitt helsta afrek eða stoltasta stund?
Það var nú auðvitað magnað afrek síðasta vor
þegar við í Röskvu náðum inn 16 manns af 17 í
stúdentaráð. Svo var auðvitað mjög góð tilfinning
að hafa hjálpað til fyrir Samfylkinguna í síðustu
kosningum.
Hvaða skilaboðum viltu koma til ungs fólks
með áhuga á pólitík?
Ég vil bara segja fólki að taka þátt, sama hvar
þið standið. Ef þið hafið áhuga á pólitík og tengið
við einhvern flokk þá get ég ekki mælt meira
með því að taka þátt í flokksstarfi og tala við
flokksmeðlimi.
Hvers vegna valdir þú þann flokk?
Ég valdi Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að ég
taldi mínar skoðanir rúmast best innan hans. Það
sem er að fá hljómgrunn innan flokksins er trúin
á sjálfstæði og framtak einstaklingsins, frjálst
framtak, frjáls verslun, frelsi einstaklinga og það
að þróttmiklir og sjálfstæðir einstaklingar geti
verið kjölfestan í öflugu atvinnulífi.
Við viljum ekki að öll verkefni séu á höndum
ríkisins. Ég trúi því að einstaklingar geti farið
með eignir og ýmis verkefni í almannaþágu jafn
vel og ef ekki betur en ríkið sem felur í sér aukið
traust í garð einstaklinga og minni tilkostnað
ríkisins og þ.a.l. minni byrði á skattgreiðendur.
Sem ung manneskja í stjórnmálum, hver-
nig er komið fram við þig? Er komið öðruvísi
fram við þig miðað við eldri kollega þína?
Ég lendi alveg í því í partýjum og álíka að fólk
Ég lendi alveg í því í partýjum og álíka að fólk
taki samtalið um skoðanir við mig, ég hef bara
gaman að því. Mér finnst rosalega heilbrigt að
taka umræður og að mínu mati erum við fyrst
á hættulegum stað þegar fólk hættir að tala
saman. Mér finnst t.d. gott hvernig umræðan
um stjórnmál hefur stækkað á miðlum eins og
Twitter. Það sést að stjórnmálaáhuginn er til
staðar en hann er kannski minna til staðar innan
ungliðahreyfinganna. Það er verkefni sem við
þurfum að takast á við, að reyna fá umræðuna
inn á betri vettvang þar sem við getum haldið
uppi gagnrýnni umræðu, til dæmis með því að
halda málþing.
Á heildina litið þá er fólk auðvitað með
skoðanir á manns persónu og skoðanir á því
sem manni finnst. Ég reyni að taka á því með
æðruleysi og á meðan ég held mig við mínar
skoðanir þá er ég aldrei að fara taka neitt nærri
mér. Mér finnst það vera þannig að þegar maður
tekur þátt í flokksstarfi og ætlar að hafa sínar
skoðanir og veita kjörnum fulltrúum aðhald þá
auðvitað kemur þessi aldursdýnamík inn í málið.
Yngra fólki finnst erfitt að segja fullorðnu fólki
Veronika Steinunn Magnúsdóttir, 23 ára, Sjálfstæðisflokkurinn
Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, 21 ára, Samfylkingin.