Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 38

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 38
38 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN fyrir og það er auðvitað alltaf til fólk sem vill vita betur en þú, aðeins af því að þú ert yngri. Innan Sjálfstæðisflokksins hef ég hins vegar upplifað skilning á mínum skoðunum og minni stöðu. Einnig finnst mér mikilvægt að við sem erum ungt fólk í stjórnmálahreyfingum stöndum með okkur sjálfum og verðum ekki einhverjar klappstýrur fyrir flokkinn. Við verðum alltaf að standa með okkar skoðunum. Hvað gerir þú fyrir utan stjórnmálin? Ég er að læra lögfræði og var að skrá mig nýlega á kickbox-námskeið, ég er almennt séð mjög gefin fyrir íþróttir og nýjar áskoranir. Áður fyrr var ég mjög virk í skák; ég fór til dæmis á Ólympíumót í Baku, Evrópumót og heimsmeistaramót þegar ég var yngri en ég lagði það aðeins til hliðar þegar ég byrjaði í námi. En í dag er ég reyndar með hlutverk í heimildarmynd RÚV um Friðrik Ólafsson, fyrsta stórmeistarann í skák, þar sem ég er að taka viðtöl við hann og fleiri í skákinni. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Ég hreinlega veit það ekki. Mig langar að klára lögfræðinámið og fara hugsanlega master. Svo fer framhaldið eftir því hvert hugurinn leitar. Í sambandi við stjórnmálin þá langar mig alltaf að hafa þau á hliðarlínunni og kannski fer ég í framboð einn daginn en þangað til þarf ég að lifa aðeins lífinu og sjá til. Hvað er þitt helsta afrek eða stoltasta stund? Mér fannst gaman þegar ég fékk Hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar þegar ég var í grunnskóla fyrir að vera jákvæð, réttsýn og auk þess að hafa náð framúrskarandi árangri í skák. Ég á margar frábærar stundir frá því að vinna verðlaun í skákinni, það var mér rosalega mikil hvatning. Hvaða skilaboðum viltu koma til stjórnmála- fræðinema? Reynið að fylgjast með samfélagsumræðunni, mynda ykkar skoðanir og ekki vera hrædd við að tjá ykkar skoðanir. Ennfremur ef þið teljið ykkar skoðanir rúmast innan einhvers flokks, fylgist þá endilega með flokkstarfinu, gangið í ungliðahreyfinguna og hafið áhrif í gegnum stjórnmálin vegna þess að löggjafinn er okkar æðsta vald. Baldvin Pálsson, ritstjórn Dagur Kárason, ritstjórn

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.