Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 39

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 39
Spurning 1: Þú ert sett/ur í hópverkefni sem þú vilt fá topp einkunn fyrir , hvað gerir þú? - Tek að mér að vera hópstjóri, eina leiðin til að tryggja að allt sé gert rétt. - Spyr eldri nemanda sem fékk háa einkunn um glósur til að herma eftir. - Byrja bara á einhverju og vona að þetta komi allt saman á endanum. Spurning 2: Hvaða stöðu finnurðu þig vanalega í innan vinahópa? - Ég er mamman í vinahópnum. - Skemmtanastjórinn. Ég dreg hópinn niður í bæ eða á spilakvöld. - Haha ég þarf ekki vinahóp, ég er minn eiginn besti vinur. Spurning 3: Vinum mínum finnst ég vera of - Róttæk/t/ur - Mikið inni í þægindarammanum - Sjálfhverf/t/ur Spurning 4: Þú færð meiri hamingju út úr því að hjálpa öðrum að ná sínum markmiðum en að ná þínum eigin. - Já - Nei - Ég fæ vanalega aðra til að hjálpa mér. Spurning 5: Þegar ég þarf að taka erfiða ákvörðun leita ég til - Skynseminnar minnar og að bera saman kosti og galla. - Foreldra minna og reyni að forðast óþarfa áhættur. - Vina minna og spyr sem flesta um álit. Spurning 6: Þegar ég sé eitthvað rangt í heiminum eru mín fyrstu viðbrögð að - Stuðla að vitundarvakningu um málefnið. - Finna út hvernig ég get hjálpað jafnvel þótt það myndi kosta mig tíma. - Mér er oftast bara alveg sama eins lengi og það snertir mig ekki. Spurning 7: Markaðslausnir eru - Fyrir bestu. - Siðlausar án töluverðra ríkisafskipta. - Óþarfi í fullkomna samfélaginu í hausnum á mér. Hvaða stjórnmála ert þú? Taktu prófið! Skrifaðu hjá þér hvaða tákn þú færð mest af til að komast að hvaða hugsuði þú líkist mest og lestu spekingaspánna á næstu síðu

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.