Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 42

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 42
42 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN Þegar litið var til Íslands þá var lítið til af „verkfærum“ fyrir ungt fólk til að nýta sér til að kynnast lýðræði og framkvæma það utan hefðbundinna kosninga. Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og Landssamband ungmennafélaga (LUF) höfðu framkvæmt skuggakosningar í framhaldsskólum frá árinu 2016, m.a. til að stuðla að aukinni þátttöku ungs fólks í kosningum á Íslandi. Skuggakosningar eru hermikosningar sem haldnar eru í framhaldsskólum fyrir alþingiskosningar og sveitastjórnarkosningar þar sem framhaldsskólanemendur kjósa um sömu flokka og eru í framboði í kosningum til Alþingis eða sveitastjórna. Skuggakosningar eru öflug aðgerð sem tilvalið var að nýta til að búa til handbók um þátttöku í lýðræði, með sömu gildi í huga; að stuðla að aukinni þátttöku ungs fólks í íslenskum stjórnmálum og auka stjórnmálalæsi á Íslandi. Hugmyndin um handbók í íslensku samhengi fór að taka á sig mynd í byrjun árs 2020. Markmiðið var að búa til handbók með óformlegum aðgerðum (e. Non-formal educational actions) fyrir ungt fólk og fólk sem vinnur með ungu Af hverju er mikilvægt að taka þátt í lýðræðinu? Hvernig er bæði hægt að fræða ungt fólk á Íslandi um lýðræði og stuðla að því að það taki þátt í því? Þetta er spurning sem vaknaði sumarið 2019 þegar Sara Þöll Finnbogadóttir, BA nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hafði unnið að verkfærakistu (e. Toolkit) fyrir ungt fólk í aðildarríkjum Evrópusambandsins fyrir Evrópuþingskosningarnar sama ár. Markmiðið með verkfærakistunni var að útbúa eins konar handbók fyrir framhaldsskólanemendur til að framkvæma aðgerðir í aðdraganda Evrópuþingskosninganna. Aðgerðirnar voru allt frá því að skipuleggja pallborð með frambjóðendum til þess hvernig eigi að efna til áheita fyrir frambjóðendur.

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.