Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 44

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 44
44 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN Flaustursverk í framkvæmd kosninga Skoðanir á því hvernig staðið var á kosningunum eru skiptar á Alþingi en þær eru allt frá því að alvarlegir annmarkar hafi verið á framkvæmd þeirra, í Norðvesturkjördæmi þá sérstaklega, yfir í að um lýðræðislega hörmung sé að ræða. Samstaða virðist þó vera um að lög hafi verið brotin og að vinnubrögð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis hafi verið dálagleg. Til að gera langa sögu stutta skal hér aðeins getið að helstu annmarkarnir voru að mistök voru gerð við talningu og flokkun atkvæða, kjörgögn voru ekki innsigluð eftir talningu, starfsfólk hótelsins þar sem talningin fór fram hafði aðgang að talningarstað eftir að yfirkjörstjórn yfirgaf hótelið og endurtalning átti sér stað án þess þó að eftirlitsaðilar væru boðaðir. Þó svo að öryggismyndavélar væru á talningarstað náðu þær ekki til þess rýmis þar sem kjörgögnin voru geymd í opnum kössum. Í þokkabót var formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi einn með kjörgögnin í 35 mínútur áður en aðrir meðlimir yfirkjörstjórnar og talningarmenn komu á vettvang eftir hvíld. Eins og ber að skilja skapaðist mikil umræða um fyrirkomulagið og lögmæti kosninganna í samfélaginu því ekki var hægt að ábyrgjast að ekki hafi verið átt við kjörgögnin þar sem því verklagi sem lög kveða á um var ekki fylgt. Ekki batnaði ástandið þegar formaður yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis, Ingi Tryggvason, sagði í samtali við fréttastofu Vísis að það hafi ekki tíðkast að innsigla kjörgögn eftir klúðrið 2021 og nýja stjórnarskráin Nú eru liðnir fjórir mánuðir frá alþingiskosningunum síðustu sem haldnar voru 25. september 2021. Tveimur mánuðum síðar upp á dag staðfesti meirihluti Alþingis kjörbréf þau er landskjörstjórn gaf út 1. október 2021 og hafnaði jafnframt breytingartillögu Indriða Inga Stefánssonar (P) um að láta fyrri talninguna í Norðvesturkjördæmi standa ásamt því að virða að vettugi nefndarálit Björns Levís Gunnarssonar (P), sem sat í kjörbréfanefnd, um að endurtaka kosningarnar á landsvísu.

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.