Póllinn - mai 2023, Síða 36

Póllinn - mai 2023, Síða 36
Við hlið Alþingishússins, á háum stalli var reist stytta. Fyrsta stytta Íslands af nafngreindri konu. En hver er hún? Styttan og konan sjálf virðist hafa farið fram hjá mörgum en þó var hún brautryðjandi fyrir kvennabaráttunna á Íslandi. Hún var fyrsta konan á Alþingi og í febrúar í ár voru einmitt 100 ár síðan að hún hóf þingsetuna sína. Ég vil kynna ykkur fyrir þessari konu og ferli hennar þar sem hún hefur orðið viss átrúnaðargyðja fyrir mér. Konan sem ég er að fjalla um er auðvitað Ingibjörg H. Bjarnason. Ingibjörg fæddist árið 1868 á Þingeyri á Vestfjörðum. Hún lærði í Kvennaskólanum í Reykjavík og fór síðan í nám í Kaupmannahöfn þar sem hún varð fyrst Íslendinga til að fá leikfimikennslupróf. 25 ára gömul sneri hún aftur til Íslands og hóf að kenna í Kvennaskólanum og þrettán árum seinna árið 1906 varð hún skólastýran og sinnti þeirri stöðu í 35 ár. Menntamál voru ávallt megin baráttumál Ingibjargar gegnum ævina. Skólinn skipti hana gríðarlegu máli gegnum lífið og þegar hún lést arfleiddi hún skólann eigur sínar. Ingibjörg var virk í kvennahreyfingunni og barðist fyrir velferð Íslendinga. Eitt af fyrstu skrefum hennar í stjórnmálum var árið 1915 þegar hún skrifaði frumvarpið um stofnun Landspítalans árið 1915. Þegar kom að Alþingiskosningum árið 1922 leiddi Ingibjörg Kvennalistann. Við þekkjum mörg Kvennalistann sem stofnaður var árið 1982 en til var annar Kvennalisti sem stofnaður var fyrir Alþingiskosningar árið 1922 með því markmiði að koma konum loks í stjórnmál. Árið 1922 fóru 22,4% atkvæði til Kvennalistans (eldri) og fékk flokkurinn þar með einn þingmann á Alþingi. Ingibjörg varð fyrst kvenna til að setjast í þingstól Alþingis þegar þingárið hófst á ný þann 15. febrúar 1923. Algengur misskilningur er að Bríet Bjarnhéðinsdóttir hafi verið fyrst kvenna á Alþingi. Hún er oft efst í huga landsmanna þegar fjallað er um baráttukonur kvenréttinda í upphafi síðustu aldar, í fyrstu bylgju femínismans. Bríet var vissulega brautryðjandi, hún kveikti fyrstu neista bálsins í kvennabaráttunni og var leiðandi afl í hreyfingunni fyrst um sinn. Sagnfræðingar lýsa því að Ingibjörg hafi verið í næstu kynnslóðinni sem tók við og héldu uppi kyndli kvennabaráttunnar. Bríet barðist fyrir þátttöku kvenna í stjórnmálum, hún leiddi kvennalistann 1908-1916 og sat í bæjarstjórn Reykjavíkur í áratug. Hún fékk þó aldrei kjör á Alþingi þrátt fyrir tvær tilraunir sínar. Brautryðjandi baráttukona: Ingibjörg H. Bjarnason Það er víst að þingseta Ingibjargar var enginn dans á rósum, karlaklúbburinn á þinginu virtist ekki sáttur við að kona hefði smeygt sér inn. Ein frægasta setning Ingibjargar er: „Fyrstu konurnar, brautryðjendurnir, verða auðvitað fyrir ýmsu hnjaski, aðeins vegna þess að þær eru konur - en slíkt má ekki setja fyrir sig. Þegar konum fjölgar á Alþingi Íslendinga hverfur það, að ráðist sé á þær sérstaklega af því, þær séu konur.“ 34

x

Póllinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.