Póllinn - May 2023, Page 61
Mannréttindabrot í Egyptalandi hafa lengi vel verið hunsuð þar sem að Egyptaland er bandamaður
Vesturlanda í Miðausturlöndum en með kjöri Bidens sem forseta Bandaríkjanna þá hefur Egyptaland
verið gagnrýnt af bandamönnum sínum í auknum mæli. Vissulega munu Vesturlönd ekki skerða
samskipti sín við Egyptaland en þetta er skref í rétta átt. Fattah al Sisi lærði mikið af forvera sínum
Mubarak sem hefur orðið til þess að allri gagnrýni á ríkisstjórn hans er mætt með mikill hörku og eiga
mótmælendur í hættu á að vera handteknir, pyntaðir eða látnir hverfa. Eins og staðan er núna þá mun
Sisi eflaust sitja í forsetastólnum þangað til að hann deyr. Egyptar hafa fáa möguleika til þess að breyta
ríkisstjórn sinni, sem leiðir til þess að hnignun Egyptalands sem hefur verið síðustu áratugi mun
einungis halda áfram. Á síðustu árum hefur áhugi Vesturlanda á Miðausturlöndum farið dvínandi, sem
gerir það að verkum að það er aukin ástæð til þess að vera gagnrýnin á egypsk stjórnvöld. Þar sem að
það eru færri hagsmunir til að gæta þá er hægt að krefjast í auknum mæli að ríkisstjórn Egyptalands
opni á meira lýðræði í samfélaginu, fyrst að þeir eiga að kallast bandamenn okkar. En að sama skapi þá
er minni áhugi til þess að hafa einhver áhrif á egypsk innanríkismál, sem mun einungis leiða til þess að
landið verður fátækara og líkurnar á lýðræði fer minnkandi.
Auðólfur Már Gunnarsson
Njóttu þess að vera hluti af lifandi
háskólasamfélagi.
Fjölbreytt þjónusta fyrir alla.
Háskólatorgi, Sæmundargötu 4
102 Reykjavík
Sími: 5 700 700
fs@fs.is · www.fs.is
Opið mánudaga - fimmtudaga
kl. 9-16 og föstudaga kl. 9-12