Póllinn - mai 2023, Síða 62
Ferðin byrjaði eins allar góðar utanlandsferðir, með bjór(um) í Leifsstöð. Flest okkar
hópuðumst saman inn á Leifsstöð borðuðum rándýran mat og reyndum að drepa tímann,
Silja Bára hins vegar forðaði sér frá sótsvörtum almúganum í Saga Lounge-inu. Þegar komið
var um borð komst í ljós að óheiðarleg og samviskulaus manneskja var með í för, hafði hún
gerst svo djörf að ræna gluggasætinu mínu og sá ég á henni að það var ekki arða af eftirsjá.
Þegar hópurinn svo lenti svo í stóra eplinu var haldið upp á hótel sem staðsett var við Time
Square, þar fór hluti hópsins á smá göngu eins og verstu túristar. Við fengum helgina út af
fyrir okkur og gátum nýtt hana í að skoða borgina, Elías, Rúnar og ég nýttum laugardaginn
vel í að skoða mismunandi bari sem New York býður upp á, verst að minning þess dags er
ekki mikil.
Mánudagurinn kom og þá byrjaði gamanið, fyrsta heimsókn ferðarinnar var í Fastanefnd
Íslands til Sameinuðu þjóðanna, strax fengum við staðfestingu á því sem Silja Bára sagði um
loftgæði á skrifstofum í Bandaríkjunum, þakkar undirskrifaður fyrir að takmarkað magn
áfengis hafi verið innbyrt kvöldið áður. Eftir það var haldið til UNRWA (United Nations
Relief and Works Agency for Palestine Refugees) þar fengum við kynningu á þeirra starfi.
Þessi dagur gaf okkur smá hugmynd um hvernig restin af vikunni yrði, á þriðjudeginum var
farið í kynningu til UNICEF og eftir það í skoðunarferð um höfuðstöðvar SÞ. Bæta við
allavega einni lýsandi setningu. Rúta var svo tekin yfir til Washington DC um kvöldið, þessi
ferð minnti helst á verstu grunnskóla-rútuferð uppfull af misgóðum bröndurum og söng.
Eftir smá bras á hótelinu okkar í DC fengum við loks kærkominn svefn eftir langan dag.
Bandaríkjaferðin
Alþjóðafulltrúinn segir stuttlega frá námsferðinni
60