Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Side 5

Heima er bezt - 01.12.2004, Side 5
Jón R. Hjálmarsson: C/,_ bermánaðar, koma jólin eins og himnasending og bera með sér birtu og yl inn í vetrarmyrkrið. Margar af fegurstu minningum okkar frá æsku- dögum eru tengdar jólunum og þær minningar geymum við innra með okkur alla ævi. Við upplifum jólin sem hátíð ljósanna og sem sigur birtunnar yfir myrkraöflun- um og sem kristnir menn gleðj- umst við innilega yfir þessum fagra afmælisdegi Jesúbarnsins. Og hvort sem við erum ung eða gömul, þá hlýnar okkur alltaf um hjartarætur, þegar við heyrum söguna um Frelsara heimsins, sem fæddist í ijárhúsi á Betlehemsvöll- um fyrir 2000 árum og var lagður í jötu. Við þessa sögu glöddumst við í æsku og ef við viljum halda áfram að gleðjast á þessari hátíð ljósanna, þá skulum við alla ævi fagna jólunum á sama hátt og við gerðum, þegar við vorum böm. En á mælikvarða sögunnar er kristin trú ekki mjög gömul og jólin, sem kirkjuleg hátíð, eru líka allmiklu yngri en trúin sjálf. Þannig eru bæði páskar og hvítasunna miklu eldri hátíðir hjá kristnum mönnum. A fyrstu öldum kristni deildu rnenn hart um fæðingardag Jesús, því að enginn vissi hið rétta um það efhi. Varð þessi óvissa til þess að í frumkristnum söfnuðum tóku menn að halda upp á fæðingarhátíð frelsarans á ýmsum árstímum. Eftir að kristnir menn höfðu öðlast trúfrelsi í Rómaveldi árið 313 og einkum eftir að kristnin var gerð að ríkistrú árið 380, komu söfnuðirnir sér saman um að miða fæðingardag Frelsarans við 25. desember. Á þeim árstíma, kringum vetrarsólstöð- ur, hafði ffá fornu fari verið haldin hátíð í Róm. Og eftir að Caesar innleiddi tímatal sitt undir miðja síðustu öld f. Kr., var tekið að helga þennan dag hinum ósigrandi sólguði eða Sol invictus. Svo gerðist það um eða laust eftir aldamótin 500, að rómverski munkurinn Dionysus litli reiknaði út fæðingarár Jesús og setti það við árið 754, samkvæmt fomu tímatali Rómvetja. Við það ár miða síðan kristnir menn timatal sitt og telja árin frá því fram eða aftur með því að nefna þau ýmist fyrir eða eftir Krist. Við það situr upp frá því, þótt síðari tíma rannsóknir bendi til að Kristur hafi komið í heiminn um miðsvetrar- leytið árið 4 f. Kr. Á Norðurlöndum og hjá öðmm germönskum þjóðum var það fom venja að halda hátíð um svipað leyti og kristnir menn í Rómaveldi settu fæðingardag Frelsarans. Þessa gömlu hátíð nefndu norrænir menn jól og það heiti fékk að halda sér, þótt þeir hyrfu frá heiðni og tækju upp kristna trú á 9. og 10. öld. og kirkjuleg hátíð kæmi í stað heiðinnar blótveislu. Orðið jól er ævafornt í germönskum málum og

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.