Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Síða 8

Heima er bezt - 01.12.2004, Síða 8
norðanverðan Kollafjörð, „utan túns þó”, eins og Stefán skáld frá Hvítadal kemst að orði í bernsku- minningum sínum. En nú lá leið okkar semsagt út að Kolla- ijarðarnesi, og brátt vorum við komin þar í hlað. Þar tók á móti okkur Sigríður Jónsdóttir, húsfreyja, og sýndi okkur kirkjuna, en húsbóndinn, Sigurður Marinósson frá Álfgeirsvöllum í Lýtingsstaðahreppi, var af bæ. Kollafjarðarneskirkja var reist sumarið 1909, og þá fluttist prests- setrið einnig þangað. Fyrsti og eini prestur, sem sat að Kollafjarðarnesi, var sr. Jón Brandsson. Frá Kollafjarðarnesi er útsýni mikið til hafsins og inn til Kolla- Qarðar. Kirkjan stendur nokkuð ofan við bæinn á hæð eða klöpp, sannar- lega Guðs hús byggt á bjargi. Þetta er steinkirkja, háreist og ber hátt yfir, ljósakross á stöpli. Garður, mjög malarborinn, er rétt vestan við kirkjuna. Hingað, að Kollaijarðamesi, er ferðinni m.a. heitið, til að skoða gamla altaristöflu úr Fellskirkju, sem hangir þar á vegg. Þegar inn er komið í kirkjuhúsið, blasir fyrst við stór altaristafla í kór, máluð mynd af Kristi í, eftir A. Dorph, en á austurvegg er hin forna altaristafla úr Fellskirkju, kvöldmál- tíðarmynd, máluð á tré, með vængj- um á hjörum. Hún lætur ekki mikið yfir sér við fyrstu sýn, en þegar hún hefúr verið opnuð, blasir við fagurt listaverk. Taflan er frá árinu 1758 og gefin Fellskirkju af áðurnefndum Halldóri Jakobssyni, sýslumanni, sem áletran- ir á vængjum gefa til kynna, en þar eru stafirnir H. J. S. (Halldór Jakobs- son sýslumaður) og A. B. D. (Ástríð- ur Bjamadóttir). Altaristaflan sýnir Krist ásamt postulum sínum. Þeir sitja í hring við kvöldmáltíðarborðið. Lærisveinninn, sem Jesús elskar, hallast að brjósti hans. Postularnir bera rauða og bláa kirtla. Á vængjum eru einnig myndir Gamla altaristaflan úr Fellskirkju, nú í kirkjunni í Kollafjarðarnesi. í fögrum litum, vinstra megin fæðing Jesúbarnsins, en hægra megin uppstigningin. Hér er gersemi uppi á vegg. Sem ég nú stend þarna, frammi fyrir hinu forna listaverki og virði það fyrir mér, kemur upp í huga minn frásögn skáldsins, Stefáns frá Hvítadal, er hann lýsir fyrstu kirkjuferðinni sinni um jól að Fellskirkju, einhvern tímann rétt fyrir næst síðustu aldamót. Þessi frásögn er mér kær og vafalaust mörgum fleiri. í frásögninni, sem ber heitið Jól - bernskuminningar, lýsir skáldið m.a. þeim hughrifúm, sem jólaguðs- þjónustan í Fellskirkju vakti í sál barnsins, og hvernig helgi jólanna gagntók ungan dreng. Stefán frá Hvítadal var sem kunnugt er, fæddur á Hólmavík árið 1887, en á öðru ári fór hann í fóstur til frænda síns, Jóns Þórðarsonar á Stóra-Fjarðarhorni við Kollafjörð, og ólst þar upp til 15 ára aldurs. Stóra-Fjarðarhorn liggur við botn Kollafjarðar sunnanverðan, og þaðan var aðeins um hálftíma gangur að kirkjustaðnum Felli. Þessa leið fór Stefán fótgangandi ásamt öðru heimilisfólki, til jólaguðsþjónustunn- ar í Fellskirkju, hjá sóknarprestinum sr. Arnóri Árnasyni. En grípum nú niður í bernsku- minningar skáldsins frá Hvítadal, frá fyrrnefndri jólamessuferð, en þar segir: „Pabbi leiðir mig við hönd sér inn kirkjugólfið og inn í kórinn. Hann gengur til sœtis og setur mig í kjöltu sér, því þröngt er í kirkjunni. Eg litast um. Hvílík dýrð! Rautt gullklæði er breitt yfir altarið, en yfir klæðinu dúkur, skínandi hvítur. A altarinu brenna níu kerti í þrem glóandi fögrum kertastjökum. Eg virði altaristöfluna fyrir mér. Á henni eru vœngir tveir. Þeir standa opnir. A töfluna eru málaðar myndir af postulum Krists, þeir bera rauða og bláa kirtla og Ijósin á altarinu varpa Ijóma á klæði þeirra. Fremst í kórn- um hangir Ijósahjálmur úr kopar. I hjálmkrónunni logar á skínandi fögrum olíulampa. En í tvísettum hringröðum umhverfis krónuna, brennur á tólgarkertum tólf. Frammi í kirkjunni brennur á Ijósahjálmi öðrum. Yfir kórnum rís hvelfingin, blá og djúp, eins og vetrarhiminninn úti fyrir. ” Svo mörg voru þau orð. Langt er um liðið síðan atburður sá gerðist, sem hér er lýst, nálægt ein öld, en enn stendur altaristaflan með vængjunum tveimur uppi á vegg, að vísu í annarri kirkju. Ég virði gömlu altaristöfluna fyrir mér. Sjaldan verður manni ljósara en á slíkri stund merking orða post- ulans, þegar hann segir: „Því að hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýni- lega er eilíft.“ (2. Kor. 4:18). Tími Fellskirkju heyrir sögunni til, eða eilífðinni. Kirkjur eiga sinn tíma, stuttan eða langan, sama er að segja um ölturu og altaristöflur, en orð Guðs varir að eilífu, það stendur fast eins og himinninn. Orðið gefur dauð- um hlutum líf. Ferðasaga okkar um Strandir verð- ur ekki rakin frekar hér. En dálítinn eftirmála langar mig að hafa í fram- haldi af heimsókninni á kirkjustaðina tvo, sem með svo ólíkum hætti tengj- ast skáldinu frá Hvítadal. Lífshlaup Stefáns frá Hvítadal hefur orði mér 536 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.