Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.12.2004, Blaðsíða 32
ingum og hlöðnu kökuborði hús- freyjunnar, heyrðum við gamlan mann kalla úr næsta herbergi, er spurði um hvaða gesti hefði borið þama að garði. „Þið ættuð nú að líta inn til hans Kristjáns, tengdaföður míns. Hann hefur svo gaman að hitta gesti og spjalla við þá.” Þarna hittum við Kristján, fyrr- verandi bónda í Lambanesi, sem var rúmliggjandi, enda kominn um ní- rætt,“ sagði Kristinn. Er ekki að orðlengja það að samn- ingar um bækistöð íyrir síldarleitar- flugið í landi Lambaness tókust með ágætum, eins og komið hefur reyndar fram hér á undan og þegar við kom- um fljúgandi norður, þann 11. júlí um sumarið og renndum þar upp í íjöruborðið, stóð Lambanesfjöl- skyldan á vatnsbakkanum og bauð okkur Alfreð, Sigga flug og mig vel- komna. En þegar við komum heim að bænum, sat Kristján gamli á varin hellunni og sagðist engan tíma hafa til þess að liggja í rúminu þegar flug- tæknin væri að ganga í garð í Fljót- um. Þama höfðum við sumarbækistöð fyrir sjóflugvélar okkar vegna síldar- leitarinnar, í fimm sumur, 1944-48, og mörgum fannst þetta ótrúlega skemmtilegur tími, þó að stundum bjátaði ýmislegt á. Til dæmis bjugg- um við í tjöldum fyrsta sumarið og eitt sinn vöknuðum við Alfreð hríð- skjálfandi á floti í tjaldinu eftir rigningarnótt. Þá leituðum við á náð- ir kaupfélagsstjórans í Haganesvík og fengum þar góða . Þetta voru þó smámunir hjá því sem við lentum í um haustið (1944), þann 20. september, er við vorum ferðbúnir til Reykjavikur og ókum Stinsoninum út á vatnið til flugtaks. Mikið hvassviðri skall á fyrirvara- laust og rétt þegar við vorum að komast í flugtaksstöðu, sogaðist vél- in hátt í loft upp af völdum hvirfil- vinds og skall síðan á hvolfi niður á vatnið aftur. Fyrir einhverja guðs- mildi komumst við Alfreð út úr vélinni og héldum okkur í flotholtin meðan flugvélin var að reka að landi undan bænum Hraunum, sem mun Gamli maðurinn á miðri myndinni er Kristján Jónsson, Jýrrverandi bóndi í Lambanesi. Hann varð allra manna elstur á Islandi um sína daga, á 105. aldursári er hann lést, árið 1959. Kristinn Olsen sagði greinarhöfundi að Kristján hefði verið rúmliggjandi þegar Loftleiðamenn komu þarna fyrst, en við að sjá þetta nýja landnám í sögu Fljótanna, reis gamli maðurinn úr rekkju og sagðist ekki hafa nokkra löngun til að deyja strax. Með Kristjáni á myndinni eru frá vinstri: Stefán Magnússon, Olaf Olsen, Kristján (94 ára), Haraldur Gíslason, Einar Arnason, Jón H. Júlíusson og Hörður Eiríksson. Ekki er vitað um nafn litlu stúlkunnar að baki Kristjáns. Kristinn Olsen. hafa tekið um klukkustund, því hvergi fannst sjófær bátur við vatnið, sem menn treystu til björgunarað- gerða. Þegar vélin kenndi loks grunns, komu heimamenn vaðandi upp í axlir að bjarga okkur og þegar í land var komið bar þar að mann sem var að koma yfir Siglufjarðarskarð og hafði í fórum sínum eina flösku af Svartadauða, töðugjaldavíni handa fátækum bónda í Haganesvík, sem við stuðuðum okkur strax á og stund- um síðar minntumst við Alfreð á að líklega hefðum við aldrei dreypt á betra víni en Fljótabóndans, forðum daga. Eins og áður er drepið á, skeði ýmislegt varðandi flugstarfsemina við Miklavatn, sem ekki þætti við hæfi í dag, en allt blessaðist þetta á ótrúlegan og gæfusaman hátt að áliti Kristins, eins og til dæmis þegar við fengum flugvélarbensínið ffá Haga- nesvík. Þar hafði því verið skipað á land í stáltunnum. Þaðan var það flutt til bækistöðvar okkar með her- trukk, sem var með stálpalli. Þegar bíllinn kom með farminn, bentum við bílstjóranum á bensíngeymslu- tóftina, sem var nokkurn spöl afsíðis. Mér láðist að biðja bílstjórann, sem var ungur menntaskólanemi úr sveit- inni, að bíða meðan ég kallaði á strákana, sem voru í mat, til þess að hjálpa til. Nema hvað, ég heyri mikið urg og ískur frá trukknum og sé mér 560 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.