Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2004, Qupperneq 45

Heima er bezt - 01.12.2004, Qupperneq 45
heimsókninni og að Kristín skyldi vilja gista í Lækjar- brekku. „Þvílíkur árangur!“ sagði hann, „hún er sannarlega að finna sig hérna. Elsku Unnur, ég er svo hamingjusamur yfir því að þú skyldir fá þessa frábæru hugmynd og ég sem hélt að það væri að slá út í fyrir þér þegar þú stakkst upp á þessu. Þú veist alltaf allt best, ég skil ekki hvernig þú finnur alltaf hárréttu lausnina!“ Unnur skildi það ekki heldur, en svona var þetta, annað hvort datt henni ekkert í hug eða þá hún vissi ná- kvæmlega hvað var best að gera. Pabbi hennar hafði boðið Steinari aðstoð sína við að rifa og hreinsa, þannig að þeir voru í því lungann úr marsmánuði, ásamt því að Steinar réði til sín þrjá smiði fyrir sumarið, tveir þeirra voru frekar ungir en höfðu þó einhverja reynslu, þann þriðja leist honum best á, hann var að verða sextugur og hafði greinilega innsýn í allt sem viðkom nýbyggingum og endurbótum á gömlu. I endaðan mars gerði snarpan hríðarkafla með miklu fannfergi, og bændur prísuðu sig sæla að eiga nóg hey eftir þetta indælissumar ef veðrið skyldi verða svona eitthvað fram á vorið. Unni fannst allar árstíðir hafa sinn sjarma og það fór alls ekkert í taugarnar á henni að hafa hríð og snjó, henni fannst sveitin svo dásamlega falleg og friðsæl, alveg eins og á jólakorti, þegar hreinn og nýr snjór þakti allt. I byrjun apríl sagði pabbi hennar að þau væru nú komin með afadrenginn til sín, Heiðrún hefði vanið hann af brjósti og nú væri hann alfluttur í Lækjarbrekku með allt sitt hafurtask. Hún sjálf hefði farið í frí með vinkonum sínum til Spánar og ætlaði að vera í heilan mánuð. Það er allt að breytast, alltaf hreint, hugsaði Unnur. Heiðrún farin til Spánar og búin að láta Unnar Má frá sér, Jóna fer að vinna á hótelinu í júní og þau Svenna langar mest til þess að kaupa sér jörð einhvers staðar. Steinar ætlar að byggja einn sveitabúgarð fyrir okkur, eitt nýtískufjós fyrir þau í Nýjabæ og breyta fjósinu í Eilífðarnesi í fjárhús fyrir Erlu og Víglund, ásamt því að klæða allt prestssetrið að utan. Þorkell er búinn að fá sér ráðskonu, sem átti eitt barn sjálf og strax farið að kjafta um þau í sveitinni. Hjónin í Nýjabæ sendu Bergþóru sína suður í fjölbrautarskóla, Perla og Palli ætla að stækka galleríið því þau þurfa stöðugt að vera að framkvæma eitthvað. Vigga ætlaði að koma norður um sumarið í nokkrar vikur og vinna á sjúkrahúsinu, Oli ætlaði að vinna í banka um sumarið, honum gekk mjög vel í viðskiptanáminu sínu. Svona lét Unnur hugann reika daglangt, stillti persónum í lifi sínu upp í huganum og púslaði þeim svo út og suður. Fæðing hjá henni var áætluð 15.-20. apríl og þann 5. apríl, á 26. afmælisdaginn sinn, þegar hún átti tíma í mæðraskoðun, hafði hún verið með stingi um allan skrokkinn og gat engan veginn sofið eða vakað um nóttina, henni var samt ekki mjög illt en fannst eins og væri verið að rífa í sig og toga sig alla til að innanverðu. Hún sagði þó ekkert við Steinar eða Erlu um morguninn, og sagðist alveg geta farið ein í skoðun þar sem hún vissi að Erla ætlaði til Víglundar strax og hún var búin að gefa, og Steinar ætlaði að vera ásamt föður hennar í einhverju viðhaldi á sumarhúsunum í Lækjarbrekku allan daginn. Það var líka svo gott veður, og þótt skaflamir væm svo háir að það mynduðust nánast göng meðfram veginum, þá fór Lancerinn hennar allt, enda rennifæri þar til færi að hvessa, þá myndi fljótlega skafa á veginn. Uss, það verður ekkert vandamál að komast heim, hugsaði Unnur þegar hún renndi upp að sjúkrahúsinu, brosti annars hugar þegar hún fann hvað barnið lét ófriðlega, og var alveg sannfærð um að það vildi fljótlega komast út. I skoðuninni spurði ljósmóðirin hvort hún hefði virkilega komið ein framan úr sveit. Hún hélt það nú. „Eg er ekki viss um að þú farir strax til baka”, sagði ljósmóðirin brosandi. „Bamið er í höfúðstöðu og er samkvæmt mínum fræðum að leggja af stað út í heiminn!“ „Ha?“ sagði Unnur forviða. „Það getur ekki verið, ég á ekki von á mér alveg strax, er það nokkuð?“ „Ja, ég hélt ekki”, sagði ljósmóðirin, sem hét Guðrún, „en þetta er heilmikið og stórt barn, og bíddu, ég ætla aðeins að skoða þig almennilega. Jú, jú, þú ert byrjuð í útvíkkun, elskan mín og nú er bara að fara að græja þig og koma þér svo á næstu klukkutímum á fæðingarstofuna.. Hún talaði eitthvað margt fleira, sem Unnur náði ekki. Hún fann kuldahroll læðast um sig og kvíðann heltaka sig og varð að taka á öllu sínu til þess að ná stjórn á sér á meðan hún gerði sér grein fyrir að nú var komið að því. „Færðu enga verki Unnur?“ spurði Guðrún á meðan hún sýndi henni allt og undirbjó það sem þurfti. „Ha, jú, einhverja stingi hef ég verið með”, svaraði Unnur utan við sig. „Viltu ekki hringja í tilvonandi föður barnsins?" spurði hún svo, og hló þegar Unnur sagði: „Jú, ætli það sé ekki best”. Svo fóru hlutirnir að gerast hratt. Steinar var kominn á augabragði og eftir um það bil tvo klukkutíma frá því að Unnur gerði sér grein fyrir því að hún var að fara að fæða barn, var hún undirlögð af verkjum og komin með 4-5 í útvíkkun. Þetta er ógeðslega vont, hugsaði hún og langaði mest að grenja í verstu hríðunum, og henda bæði Steinari og ljósunni út af fæðingarstofunni, þau voru svo ofsalega, ofsalega skilningsrík og pössuðu alveg klukkuna fyrir hana, þannig að hún vissi nákvæmlega hvenær næsti verkur kæmi. Hún var alveg að tapa vitinu, og loks stundi hún: „Steinar, geturðu séð um að ég fái að tala við Erlu í síma?“ Hann hljóp til og hringdi og hún bað hann að vera úti á meðan hún talaði við vinkonu sína. „Elsku Erla, þetta er eins og að vera í helvíti, ég fæ engan frið til þess að vera ein og ég er algjörlega orkulaus og þoli ekki þetta skilningssljóa, skilningslausa Heima er bezt 573

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.