Heima er bezt - 02.11.1963, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 02.11.1963, Blaðsíða 8
skapa núverandi skipulag í félagsmálum landbúnaðarins. Um langt skeið var hann formaður Ræktunarfélags Norðurlands. Um árabil var hann einn af áhrifamönnum Alþingis, og átti þar frumkvæði að fjölmörgum nýmælum einkum í mennta- og landbúnaðarmálum. Aldarafmæli hans var sl. sumar. Ævi- saga Stefáns eftir Steindór Steindórsson gefur yfirlit um störf hans og er í senn fróðleg og skemmtileg. Hún kynnir lesend- unum vísindamanninn, kennarann, skólastjórann, bóndann og alþingismanninn á léttan og lifandi hátt. Upplagið er mjög lítið. í lausasölu kr. 90.00 (heft). Til áskr. HEB aðeins kr. 70.00. 911. FLÓRA. Tímarit um íslenzka grasafræði. Þrír grasafræðingar, Helgi Hallgrímsson, Hörður Kristins- son og Steindór Steindórsson, hafa ráðizt í að gefa út tíma- rit, sem eingöngu sé helgað grasafræði, og þá einkum því er ísland snertir í þeim efnum. Er ritinu ætlað að flytja rit- gerðir, vísindalegar og alþýðlegar um sem flesta þætti ís- lenzkrar grasafræði. Rit þetta er fullkomin nýjung í íslenzk- um bókmenntum, og fyllir upp skarð, sem lengi hefur staðið autt og opið. Fyrsta heftið er helgað minningu Stefáns Stef- ánssonar, skólameistara. Áskriftarverð kr. 120.00. BARNA- OG UNGLINGABÆKUR Það er mikið ábyrgðarhlutverk að velja bækur handa börnum og unglingum. Þess vegna er það ánægjulegt að geta skýrt lesendum „Heima er bezt“ frá því, að á þessu ári bætast sex nýjar barna- og unglingabækur við í bókaskrána, sem allar eru eftir ágæta íslenzka rithöfunda, og hver annarri betri. Þessir höfundar eru: Ármann Kr. Einarsson, Gest- ur Hannson, Gísli J. Ástþórsson, Hjörtur Gíslason, Jenna og Hreiðar Stefánsson og Ómar Berg. Eru þetta bækur fyrir börn og unglinga á öllum aldri, sem bætast nú við það ágæta safn bamabóka sem fyrir er. 190. ÓLI OG MAGGI f RÆNINGJAHÖNDUM eftir Armann Kr. Einarsson. Ármann Kr. Einarsson er nú viðurkenndur sem einn fremsti barna- og unghngabókahöfundur okkar. Bækur hans sameina í senn marga kosti. Þær eru ritaðar á góðu íslenzku máli, jákvæðar í efnismeðferð og síðast en ekki sízt óvenju- lega skemmtilegar. Þessi nýja bók, Óli og Maggi í ræningjahöndum, er þriðja bókin í flokki Óla-bókanna. Þó er þetta sjálfstæð saga, þótt aðalpersónurnar séu þær sömu og í fyrri bókunum. Sagan hefst á því, að Maggi komst í þá sjaldgæfu atvinnu að vera gæzlumaður í æðarvarpinu í Sandey ásamt Boggu gömlu. Gamla konan, sem veit lengra nefi sínu, og skilur fuglamál, fær hastarlegt gigtarkast og verður að fara í land. Óli tekur þá að sér starf hennar um stundarsakir. Úti í Sandey er háð 394 a. Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.