Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 13

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Blaðsíða 13
/ Y I Ð T A L VIÐ TVÆR YNGISME Y JAR Ver vöknum með andfælum er skóla- bjallan, þessi mikli friðarspillir, hringir ákaft. Þetta er að mánudegi til, - x fyrsta tímanum til að vera alveg ná- kvæmur. Þar eð vér erum þeirrar sælu aðnjótandi að hafa dráttlist í fyrstu tveim tímunum, fáum vér oss fegurðarblund á bak við skólaborðið. Skólaborðin í teiknistofunni eru nefnilega þeim dásam- lega eiginleika gædd, að hægt er að reisa borðplötuna lóðrétt í loft upp. En semsé, nu er það skólabjallan, sem truflar svefn vorn, og hrindir oss miskunnarlaust nið- ur ur draumskýjunum. Vér reynum að taka glamri hennar með jafnaðargeði og kristilegri þolinmæði og verðum að láta oss lynda að flýja sem kvikfénaður undan óvægnum prikum gangainspektoranna. Ver klöngrumst ofan stigann og röltum síðan sem leið liggur ut í bás, en það er mjög vinsæll staður til að eyða frí- mínutunum. Sjáum vér þá oss til hugar- hrellis, að allir básar eru uppteknir. Eru það ungpíur ur 2.bekk, sem fyllt hafa alla básana. En blaðamenn frá jafn merku blaði og Blysinu, deyja ekki ráða- lausir, nei, ekki aldeilis. Vér göngum einfaldlega til tveggja jómfrónna og brjótum upp á umræðuefninu. Þær setja upp sitt blíðasta og breiðasta bros. "Vér erum blaðamenn frá Blysinu í efnisleit", segjum vér fyrirmannlega, eins og blaðamönnum frá Blysinu sæmir bezt. "Mættum vér fyrst spyrja ung- frurnar að heiti?" Þær verða eins og tvö uppljómuð spurningamerki ; svo kemur svarið; Guðrun Sveinsdóttir og Finnsdóttir. "Erindi vort", höldum vér áfram, "er að grennslast eftir því, hvern hug nemendur beri til nemendafé- lagsinsj vér viljum bera upp þessa spurningu: Hvert er álit þitt á starfi Nemendafélags G. A. , og með hvaða hætti telur þu, að félagslífið í skólanum verði helzt aukið?" Eftir að vér höfum þrílesið spurn- inguna, átta þær sig loks á innihaldi hennar. Guðrúnu I. finnst félagslífið ágætt, en hins vegar finnst Guðrunu II. það mega vera miklu betra. í sviga skal þess lauslega getið, að Guðrún I. er þessi Ijóshærða í rauðu duggarapeys- unni, en Guðrún II. er sú dökkhærða í bláu treyjunni. Báðar eru þær í 2. -B. "Okkur finnst, að hljómsveitir á dansæfingum gætu verið betri, og okkur finnst líka, að I. bekkingar ættu að vera einir um dansæfingar, en ekki með eldri bekkjardeildunum. " "Strákarnir í I. bekk fara bara í stórfiskaleik", segir Guðrún I. ,"en auðvitað læturðu það ekki í blaðið. " Vér lofum því. "Svo væri gaman, ef haldið yrði "Hlöðuball" ", segir Guðrún II., og Guðrún I. samþykkir það mjög ákaft. Ver, sem erum svo yfirnáttúrlegs fá- fróð, að þekkja eigi slíka tegund dans- leikja, spyrjum : "Ha, hvað er nú það ?" Þær útskýra það fyrir oss. - "JÚ, það er svona þú veizt, það koma allir í gallabuxum, og svo er líka hey, þú veizt. ..." Já, nú vitum vér það. "Líka væri mjög gaman að fá fleiri kvikmyndasýningar og kannski spila- kvöld svona við og við. Við lýsum ein- dregið ánægju okkar yfir hljómskífu- flutningnum í frímínútunum, og. . . . . " Því miður kom ekkert fyrir aftan þetta og, því að nú var klukkað inn. Þv'í þökkum vér hæversklega fyrir sam- talið, að blaðamanna sið. En þær virð- ast ekki á því, að láta oss sleppa; "ÞÚ birtir ekki nöfnin okkar í blaðinu, er það?" Auðvitað gerum vér það ekki. DANSKA ú 3. - X : Ungfrú Ottesen ( les ) : Ekström pudsede sin næse. ( °g þýðir ) : Ekström fægði á sér nefið.

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.