Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Page 16

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Page 16
16 hefur gáfur goðar og kann á klukku. Hrafn hefur söngrödd mikla og fagra og syngur Gamla Noa jafnt afturábak sem áfram, án þess að verða meint af„ Hrafn er mikill áhugamaður um listir allskynSj og þá ekki sízt matarlyst. Leikur hann á ýmis hljóðfæri, svo sem greiðu, glymskratta og raddböndin, að ógleymdum tánum. Hrafn er dansmaður mikillj og er meistari mikill í að dansa '’skak & skjálfta", og er án efa færasti maður skólans í þeim efnum. Hrafn kann faðirvorið. Hann hefur ávallt notið mikillar kvenhylli og hefur hann orðið fyrir svo mikilli ágengni kvenfólks- ins, að hann sá að lokum, að með þessu áframhaldi mundi hann lenda á Kvía- bryggju. Bætti hann þá ráð sitt, stofn- aði Kvenhatarafélagið, og er nú formað- ur þess og eini meðlimur. Af öllu þessu má sjá, að hér er enginn venjulegur maður á ferðinni, og mun nafn hans lifa í munnmælum meðan nokkur padda hrærist á jörðu hér. G A G N R Ý N I Sá leiðinda siður hefur jafnan verið í heiðri hafður í þeirri virðulegu stofn- un, er Gagnfræðaskóli Austurbæjar heitir, að smala nemendum út úr kennslustof- um sínum, niður á sal og jafnvel lengra, sem kvikfénaði. Yæri ekki betra, að nemendur fengju frið til að lesa í frí- mínútunum þær lexíur, sem þeir áttu að hafa heima, svo þeir snargati ekki ? Starfa þennan annast nokkrir "gæjar" úr fjórða bekk. Ganga þeir að starfa þessum af miklum eldmóði, vopnaðir prikum og reglugerð skólans. Ég er viss um, að smalar þessir vildu fegnir skipta um hlutverk og vera bara óbreyttir sauðir í nemendahjörð "Stjóra", og hafa tækifæri til að heimsækja "sjoppuna" öðru hvoru. "Háleggur " Kristín og Elín eru að tala saman í dönskutíma. Hjálmar: Hvernig er það með ykkur, - hafiði aldrei reynt heftiplástur ? MÁLFUNDARGLEFSUR Lag : Að lífið sé skjálfandi. .... Á málfundi síðasta malað var mikið um tízkuna og stúlkurnar. Og þar sýndi kjóla og kvenlegheit hann KÚkki, sem Parísar stælinn leit. Viðlag ; Mikið lifandis skelfingar ósköp er gaman að glensast hérna í Gaggó Aust. Kempan sú önnur er kom upp þar Karlsson Tryggvi af öllum bar. Með mælsku sinni hann hópinn hreif, þótt hugurinn væri þar víð á dreif. Sá náungi er síðastur svo upp gekk sýndist mér vera úr öðrum bekk. Hann langaði til þess að láta lím líma málfundinn upp á grín. THE TRAMP-CLASS f 3.bekkE eru tveir enskukennarar. Stafar það af því, að nokkur hluti bekkj- arins hefur aldrei lært ensku áður, og þarf af þeim sökum að skipta bekknum til helminga. Annar helmingur bekkjar- ins er þess vegna ætíð í húsnæðishraki og á sífelldum flækingi, þegar ensku- tímar eru, því að ekki geta báðir kenn- ararnir kennt í einu í sömu stofu. í hallæri sínu leitar bekkurinn oft í stofu nr. 17, en þar á 3.bekkur X heima, nema þegar hann er í leikfimi. Þetta sífellda rangl bekkjarins hefur gefið gárungunum tækifæri til að bregða á leik, og er nú svo komið, að meðal manna í 3.bekk X heitir þessi. bekkur alls ekki 3. -E, heldur "the tramp clas s".

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.