Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Page 19

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1958, Page 19
19 - í lækinas þar sem hentugt er dýpi og botn. Lækjarsilunginn má skoða sem urkynjaðan sjóurriða eða skemmra á veg kominn en hann í því að leita ser bjargar, þar sem hann lætur ser nægja þau sultarkjör, sem tærir, grýttir og fæðusnauðir lækir og smátjarnir hafa upp á að bjóða. Vatnaurriði er 40-50 cm langur og 1-2 kg að þyngdp en 50-80 cm og 5 kg fiskar eru alltíðir. Hann lifir í vötnum en gengur í læki og ár til hrygningar. Hann gengur ekki í sjó. Hrygningin fer fram á svipuð- um tíma og hjá laxinum. Líkur á litinn og sjóurriði en dökku dílarnir fleiri og stærri„ seiðin mjög lík. Hann líkist því fullorðinn mjög sjóurriða, en er ekki eins rennilegur. Hann lifir á margskonar smá- um vatnadýrum. Nytsemi: Urriðinn gefur laxi lítið eftir að gæðum sem matfiskur og stundum ekki heldur að stærð. Hann er því veiddur, þar sem til hans næst. Bleikjan. Lýsing: Bleikjan verður aldrei eins stór og urriði getur orðið, en vaxtar- lagið er svipað, hún er nokkuð höfuðminni og smámynntari, snjáldrið er tíðast stutt, og kúptara á ungum fiski en gömlum. Liturinn er tíðast dökkur en Ijósari á hlið- unum og þar alsettur smáum bleikgulum, bleikhvítum og bleikrauðum dílum. Sjó- bleikja (sjóreyður ) ; Hún lifir bæði í söltu og ósöltu vatni og samsvarar í því tilliti sjóurriðanum. í sjónum er liturinn mjög Ijós, sterkur silfurgljái á hliðum og drifhvítur að neðan, gætir því bleikjudíl- anna mjög lítið þar sem grunnliturinn er svo Ijós. HÚn er hér tíðast 45-50 cm löng og 0, 5-1 kg að þyngd. HÚn hrygnir líkleg- ast x október til nóvember. Vatnableikjan er eins og vatnaurriðinn staðbundinn vatna- fiskur, svo bundin við stöðuvötnin að hún hrygnir jafnvel í þeim sjálfum. í útliti er hún einkum frábrugðin sjóbleikju að hún verður ekki eins silfurbjört þann tímann, sem hún hefur eigi riðabúninginn. Stærðin er tíðast 40-50 cm og 1-1,5 kg þyngd, en getur orðið 60-70 cm og 4-5 kg. Aðalfæð- an eru vatnabobbar, en auk þess smá krabbadýr og fleira. í Úlfljótsvatni og Þingvallavatni er smábleikja 25-32 cm löng mjóslegin með kúpt snjáldur, mikið sýldan og hvasshyrndan sporð. Er hún nefnd depla (Ijórabranda í Mývatni) og er sennilega ung og óþroskuð bleikja. Dverg- bleikja er í gjám á Þingvöllum, 6-12 cm löng, dökkmógrá að ofan en Ijós að neðan með óljósum þverblettum. Fæðan er smá skordýr. í Þingvallavatni er mergð af smábleikju, er nefnist murta, og verður hennar líka vart í öðrum djúpum og köld- um vötnum, eins og Hestavatni á Gríms- nesi og Geitabergsvatni í Svínadal. HÚn er 16-25 cm löng, og er utan riðtíma svo lík deplu að ekki er gott að þekkja í sund - ur nema á stærðinni. HÚn hrygnir á hörð- um botni, og er það í október. Nytsemi: Sem matfiskur gefur hún hvorki lax eða urriða neitt eftir, hvorki sjó- bleikjan né vatnableikjan. HÚn er því mik- ið veidd þar sem til hennar næst. Göngusilung, þ. e.a. s. sjóurriði og sjó- bleikja (sjóbirtingur), má ekki veiða nema á tímabilinu 1. apríl til 20. september. Skal ég nú reyna að telja upp nokkur sil- ungavötn á fslandi. Á Suðurlandi eru, Þingvallavatn, Úlfljótsvatn, Álftavatn, Apavatn, Meðalfellsvatn og Veiðivötn á Tungnáröræfum. Á Norðurlandi eru, Mývatn og Fiskivötn á Arnarvatnsheiði. Auk þess veiðist mikið af silungi í ám, einkum í sumum árósum. Á Suðurlandi er það einkum sjóurriði, er sjóbirtingur nefnist, en á Norðurlandi sjóbleikja. Alls veiðist um 500 þúsund silungar ár- lega yfir allt landið. Um 180 þúsund sil- ungar veiðast í Þingvallavatni og af því 160 þúsund murtur. Vegur þessi veiði úr Þingvallavatni um 20-30 tonn. í Mývatni veiðast um 30 þúsund silungar, nokkuð í net og nokkuð um dorggöt upp um ís á vetrum, þessi veiði úr Mývatni vegur um 20-40 tonn. Fiskategund, er áll nefnist, er í íslenzk- um ám og vötnum, telst hann ekki til nytjafiska, þó að ég geti hans. En hann gæti ef til vill verið nytjafiskur, þar sem hann kvað vera góður matfiskur, þótt fs- lendingar hafi lítið lagt hann sér til munns hingað til. J O L I N Kristnar þjóðir halda heilög jól til minningar um fæðingu Jesús Krists. Hann var í heiminn borinn í fjárhúsi í Betlehem. Fæðing hans markaði tíma- mót í sögu mannkynsins, og er tímatal kristinna manna miðað við fæðingu hans. Telja kristnir menn hann frelsara sinn sökum þeirra kenninga, sem hann flutti og þeirrar fórnar, sem hann færði með dauða sínum, til þess að leiða mann- Frh. á bls. 21„

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.