Heimili og skóli - 01.04.1947, Side 7

Heimili og skóli - 01.04.1947, Side 7
HEIMILI OG SKÓLI 29 tr— ..............—----------- ------ ' ---- ---—-------------------------^ Þórgnýr Guðmundsson: „Hvað er þá orðið okkar sfarf?" Nýlega átti ég tal við ungan mann, er stundar nám í menntaskóla. A borði í lesstofu lnns unga manns lá pappírs- örk með rithönd hans. Ég virti fyrir mér skriftina og þótti hún ekki góð. Hafði ég orð á því við hann. Sagði ég honum, að kennarinn, N. N., væri tal- inn vel fær í sinni starfsgrein. En hjá honum Jiafði pilturinn stundað nám flest eða öll bernskuárin. Sérstaklega liafði kennarinn góða rithönd, og þótti mér ekki skrift unga mannsins bera þess vott, að hann hefði lært hjá slíkum kennara. Nemandinn svaraði: „Ég lærði aldrei neitt hjá N. N. kenn- ara meðan ég var í skóla hjá lionum." Mér kom dómur þessi á óvart og varð víst fátt um svör. Ég vissi ekki an.nað en kennarinn væri vel látinn og hefði innt starf sitt af höndum með prýði. Og mér var ekki annað kunn- ugt en að ungi maðurinn væri sann- gjarn í dómuiri sí.num um rnenn. Eg hafði engin tök á því að vita með vissu, hvort.hann hafði þarna eitthvað til síns máls, eða hve mikið. Mun ég hafa svarað þessu á þá leið, að enginn kennari væri svo lélegur, að ekki mætti eitthvað af honum læra. Þó að frá þessu sé sagt hér, er alls ekki ætlunin að kasta rýrð á kennara eða nemanda. Það er með öll ástæðu- laust. En þetta litla atvik vakti þó Iijá mér ýmsar hugsanir. Það rninnir kennara t. d. glöggt á þá staðreynd, að þeir eiga sér dómara, sem í fram- tíðinni verða hæstaréttardómarar — þegar uppeldisstörf þeirra verða veg- in og metin að loknu dagsvefki. Þessir dómarar eru nemendurnir sjálfir. Þegar þeir þroskast, geta þeir sjálfir bezt um það dæmt, hvað þeir sóttu í skóla til kennara síns, hvort þeir komu þaðan jafnfátækir og þeir fóru þangað — lærðu „ekkert“.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.