Heimili og skóli - 01.04.1947, Blaðsíða 17

Heimili og skóli - 01.04.1947, Blaðsíða 17
HEIMILI OG SKÓLI 39 Barnið mitt Móðir fjögra ára drengs kvartar yfir þrjózkunni í drengnum sínum. Hann var áð- ur svo hlýðinn og þægur, en nú er þessu öf- ugt farið. Hann gjörir ekki það, sem honum er sagt, og hið venjulega svar hans er: „Það gjöri ég, þegar mér sýnist." Ekki má hjálpa honum með neitt, hann vill borða sjálfur og klæða sig sjálfur, þótt það fari allt í handa- skolum. Hann vill ekki hátta á kvöldin, og honum gengur illa að sofna. Hann hljóðar og kvartar um, að hann finni til í maganum. Móðir hans hefur farið með hann til læknis, en hann fann ekkert að drengnum. Hann hljóðar, er tekinn upp á milli og stundum látinn í rúm mömmu sinnar, og þá batnar honum helzt. Þó fær hann ekki að vera að staðaldri í rúmi mömmu sinnar, af því að foreldrarnir óttast þá, að það verði að vana. Foreldrarnir hafa hugsað mikið um af Tiverju þessi breyting geti stafað og komizt helzt að þeirri niðurstöðu, að þrjózkan í drengnum hafi aukizt til muna, er hann fékk að vita, að hann ætti von á að eignast lítinn bróður eða systur. Þegar móðirin sagði hon- um frá því, svaraði drengurinn strax: „Eg ætla að deyða það.“ Móðirin hafði heyrt um erjur milli systkina, en ekkert þessu líkt. Og drengurinn fékk alvarlega áminningu um, að „svona mætti hann ekki tala um litla barn- ið, sem engum hafi gert neitt misjafnt.“ — Drengurinn svaraði eins og hann var vanur: „Það gjöri ég eins og mér sýnist.“ Því næst stökk hann burt og faldi sig. Siðan er hann mjög tortrygginn. Þegar móðir hans situr við sauma, spyr hann oft: „Hver á að fá þetta?“ Hann verður ólundarlegur, ef móðirin segir, að það eigi að vera handa litla barninu. S v a r: Sennilega er þessi þrjózka í drengnum í fyrstu venjulegur mótþrói, sem oft fylgir þessum aldri. En hann eykst og margfaldast, þegar hann fréttir um litla bamið. A þessum aldri vakna börn til með- vitundar um sína eigin persónu og þola illa afskipti annarra. Það er þá mikils virði, að þau fái það traust á sjálfum sér, að þau geti hjálpað sér sem mest sjálf. Þau verðaaðfáað reyna að klæða sig ein. Það þarf að láta þau vita i tíma, ef þau eiga að fara út, svo að þau hafi góðan tíma til að dunda við að klæða sig, og svo fæst oft að hjálpa þeim að síðustu. Þau verða líka að fá að sitja við borð og reyna að borða sjálf. Þó fæst oft að hjálpa þeim með síðustu skeiðarnar, þegar þau hafa fengið það inn í meðvitundina, að þau hafi að mestu leyti borðað ein. En samtímis og þau vakna til meðvitund- ar um sig sem einstakling, bera þau sig sam- an við þá fullorðnu, sem vita allt og geta allt, og þess vegna finna þau innst inni til smæðar sinnar og skortir öryggi. Þau þarfn- ast því skilnings og stuðnings þeirra full- orðnu. Það sézt bezt á kvöldin, að þennan dreng skortir öryggi, þegar hann grætur og kvartar um þrautir í maganum. Þegar litli snáðinn hefur magapínu, getur hann látið aðra snú- ast í kringum sig. Þá má hann vera lítill, gráta og leita huggunar hjá mömmu. Leyfið honum fyrir alla muni að vera x mömmu rúmi. Þótt það verði að vana einhvem tíma, venst það af aftur, þegar hann þarf þess ekki lengur. En núna þarf hann þess greinilega með. Eg held einnig, að nauðsynlegt sé að sýna honum hlýlegt viðmót á kvöldin. Gott væri, ef hann vildi sitja í kjöltu þinni, og reyndu að leika þér við hann svolitla stund, áður en hann háttar. Reyndu svo að hjálpa honum að hátta milt og vingjarnlega. Lofaðu honum að mótmæla, og segðu að þú vitir vel, að hann vilji ekki hátta, en nú EIGI hann að gera það. Leyfðu honum að sýna mótþróa. Hvað gerir til, þótt hann segi hundrað sinn- um á dag: „Það geri ég, þegar mér sýnist." Ef enginn skiptir sér af því, hverfur það smám saman. En til þess að geta læknað mótþróann í drengnum, verður þú að skilja, að það er ekki alltaf skemmtilegt fyrir barn að eignast systkini, það er engin „gjöf“ til barnsins. Sjálfsagt kemur að því, að drengnum fer að þykja vænt um litla barnið, en þá þarf hann fyrst að losna við öfundsýkina gagnvart því. Þótt hann hóti að deyða það, má ekki taka það bókstaflega. Börn hugsa svona. Þegar

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.