Heimili og skóli - 01.04.1947, Blaðsíða 19

Heimili og skóli - 01.04.1947, Blaðsíða 19
hfimili og sköli 41 Við móðurkné Þetta er nafn á lítilli, en fallegri og hugð- næmri bók, sem séra Oskar J. Þorláksson í Siglufirði hefur tekið saman, og er að nokkru leyti ávöxtur af samþykkt, sem gerð var á fundi presta og kennara að Hólum í Hjalta- dal sumarið 1945. Þetta er safn versa og bæna, sem séra Oskar hefur tekið saman til leiðbeiningar fyrir foreldra við trúaruppeldi barna sinna, og skiptist kverið í þessa kafla: Signingin. Faðir vor. Blessunarorðin. Bænin. Kvölds og margna. Bæn og lofgjörð. Foreldr- ar og börn. Vögguljóð. Heilræði og lífsregl- ur. Island, landið okkar. Kirkjan og skólinn. Hátíðirnar. Ritningargreinar fyrir hvem dag mánaðarins. Upphaf Fjallræðunnar og loks Trúarjátningin. I ávarpsorðum til foreldra segir séra Osk- ar: — Flestir foreldrar munu einhvern tíma hafa orðið snortnir af þessum orðum Frels- ara vors: Leyfið börnunum að koma til mín •ég fullyrði, að málsmekkur þeirra verð- ur næmari og fullkomnari eftir en áð- ur. Hún á að vera eins konar móteitur \ ið því iágkúrulega og lélega máli, sem við nútímamenn erum dæmclir til að lesa. Tvær bækur á ég í bókaskápnum mínum, sem ég grípofttiþþegarandleg látækt og orðafæð hefur verið méi8 til baga, og hafa þær jafnan reynzt mér heknisdómur, eins og efni standa til. liækur þessar eru Kvöldræður séra ^íagntisar Helgasonar og Áfangar Sig- urðar Nordal. Nú hefur þriðja bókin "■’/t í þetta safn með Heiðnum hug- vekjurn Sigurðar skólameistara. Von- andi ;í hann eftir að auðga íslenzka tungu með fleiri slíkum, í viðbót við það, sem liaun með kennslustarfi sínu hef'ur lagt þar að mörkum. H. J. M. og bannið þeim það ekki, því að slíkra er guðs ríki. — — — Allir þeir, sem vilja byggja líf sitt á grundvelli kristindómsins, eru á einu máli um nauðsyn trúaruppeldis. Þetta trúaruppeldi verður að byrja á heimil- unum, meðan börnin eru ung, því að þau trú- aráhrif, sem börnin verða fyrir á fyrstu árum ævinnar, eiga sinn mikla þátt í því að móta lifsstefnu þeirra síðar meir. Sé trúaruppeldið vanrækt á þeim árum, verður erfitt að bæta það upp síðar, jafnvel þótt um góða kristin- dómsfræðslu sé að ræða. Enginn fær eins mörg og góð tækifæri til að vekja trúar- hneigð barnanna og fræða þau, og for- eldrarnir, því að enginn á trúnað þeirra eins óskiptan. Allir foreldrar þrá gæfu barna sinna af einlægu hjarta, en leiðin til þess að lifa far- sælu og gagnlegu lifi er að gefa guði hjarta sitt, þegar í æsku. Allt uppeldi ætti því að mótast af þeirri hugsun. Margir foreldrar, sem vilja glæða trú- hneigð barna sinna í æsku, eru oft í nokkrum vafa um það, hvað kenna eigi börnunum í kristilegum efnum á fyrstu árunum, og hvernig það verði bezt gert. Aldagömul er sú venja að kenna börnun- um vers og bænir, þegar þau voru orðin vel talandi. Og ég held, að þessi aðferð sé enn í fullu gildi, ef rétt er á haldið. En gæta verð- ur þess, að hafa viðfangsefnin við hæfi barn- anna. I því efni er tæplega hægt að gefa al- gildar reglur, því að þroski þeirra er mjög misjafn. Þessu litla kveri er þó ætlað að vera for- eldrum og barnavinum ofurlítil leiðbeining, þegar velja skal bænavers til þess að kenna börnum. Mörg af þessum versum eru gömul og alkunn og munu því vekja hlýjar og við- kvæmar minningar í hugum margra foreldra. Þegar börnunum eru kennd vers og bænir, þarf að framkvæma þá kennslu með lotn- ingu og trúareinlægni. Sýna þarf börnunum mikla þolinmæði, og gæta þess, að þau of- þreytist ekki, heldur læri versin næstum ósjálfrátt. Útskýra þarf það, sem kann að vera þeim torskilið. Eðlilegast er, að menn biðjist fyrir og hafi yfir bænavers kvölds og morgna. Fullkomin kyrrð og næði þarf að ríkja á slíkum bæna-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.