Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 13

Heimili og skóli - 01.12.1950, Blaðsíða 13
HEIMILI OG SKÓLI 129 aura. Það er auðvitað undir efnahag foreldranna komið, hversu þessir viku- peningar eiga að vera miklir, og einn- ig eftir því, hvort þeir búa í borg eða sveit. En þessum vikupeningum fylgja einnig skyldur. Hvert heimili getur auðvitað ráðið því sjálft, hverjar þær eiga að vera. Það má t. d. segja börn- um, að fyrir þessa peninga verði þau að kaupa allar afmælis- og jólagjafir, sem þau kunni að vilja gefa. Seinna, er börnin fara að ganga í skóla, mætti t. d. láta þau kaupa sér alla penna, blýanta o. s. frv. fyrir sína eigin pen- inga. Ef þau vilja fara í kvikmynda- húsið, verða þau að kaupa aðgöngu- miðann fyrir samansparaða vikupen- inga. Ef barnið langar til að eignast einhvern hlut, sem ekki heyrir til daglegum þörfum, verður það að spara, þangað til komið er nóg fyrir þennan hlut, hvort sem það er nú vasaljós, fallegur hárborði, eða eitt- hvað annað. Þegar börnin eru orðin enn stærri, gætum við t. d. reiknað út, hve mikið fé þarf fyrir sokka handa þeim yfir árið. Smátt og smátt má svo auka þessa ábyrgð sem lögð er á herðar barnsins bæta fleiri daglegum þörfum við. Það verður auðvitað að vera öruggt, að ekki þurfi meira fé fyrir þessa hluti nú, þegar barnið á að bera ábyrgð á þeim, en áður. í viðbót við þessi vikulaun getur barnið svo unnið sér inn peninga, bæði utan heimilis og innan. Það er þó ekki ætlunin, að börnunum sé greitt fyrir hvert smávik, eru þau gera. Þar verða allir að taka á sínar herð- ar hluta af hinum margvíslegu störf- um heimilisins, og börnin líka, af því að þau eru hlekkur í einni heild, sem nefnast heimili. En ýmislegt er það, sem við vildum gjarnan greiða öðr- um fyrir að vinna, er börnin gætu gert, og mætti þá alveg eins greiða þeim eitthvað lítilræði fyrir það; og það er ekki lítilsvert atriði að læra að þekkja sambandið á milli vinnu og launa. Hér gæti verið að ræða um eitthvert verulegt starf, sem þau fengju greiðslu fyrir í eitt skipti fyr- ir öll. Einnig gæti verið að ræða um eitthvert lítið, en fast starf, er krefð- ist sömu reglusemi eins og þegar pabbi gengur til vinnu sinnar, eða mamma eldar matinn. Og skal ég nefna nokk- ur dæmi slíkra starfa, er komið gætu til greina: Ég myndi t. d. vilja greiða sjö ára dreng föst vikulaun fyrir að sjá um, að alltaf væri nægilegur eldiviður hjá ofninum, t. d. 25 aurar á viku. Tíu ára barn, sem þvær öll gólfin þrisvar í viku, mætti t. d. fá eina krónu. Fyr- ir allan bleyjuþvott mætti t. d. greiða 1.50 yfir vikuna. Þá mætti nefna dag- legan uppþvott, þótt sumum kunni að þykja eðlilegast, að það væri eitt af hinum daglegu, ólaunuðu skyldu- störfum. Á mínu heimili er því hag- að þannig, að við höldum eins konar fjölskyldufundi og þar ræðum við meðal annars, hve mikið hverjum beri að fá í kaup fyrir einhver ákveð- in störf. Ef eitthvert barnið verður leitt á starfi sínu, getur það sagt því upp, og þá ræðum við á fjölskyldu- fundunum, hvaða annað starf það geti tekið að sér. Það ber þó að varast, að börnunum verði fengið svo mikið ('Framhald á bls. 141).

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.