Heimili og skóli - 01.12.1950, Síða 15

Heimili og skóli - 01.12.1950, Síða 15
HEIMILI OG SKÓLI 131 HANNES J. MAGNÚSSON: Jól í hreysi — — Kling-kling- kling! — Kling- kling-kling! — Kling-kling-kling! Hátíðlegur klukknahljómur barst út yfir borgina. Það var líka hátíð að ganga í garð. Aðfangadagskvöld jóla var enn einu sinni komið yfir kristinn heim. Dökkklæddar fylkingar af prúð- búnu fólki voru á leið til kirkjunn- ar úr öllum áttum. Jólin voru að koma, og þá var skylt að helga jólabarninu sjálfu og guði föð- ur svolitla stund, þrátt fyrir allt ann- ríkið. Jólin voru þó stærsta hátíð árs- ins, og það væri skammarlegt að fylla ekki kirkjuna á slíkri hátíð. Fólkið þokaðist áfram, hægt og hljóðlega. og höllum. Það var eins og kirkjuklukkurnar segðu: Komið! komið! komið! Þær kölluðu alla, alla til að hlusta á gleði- boðskap jólanna. Kirkjan var uppljómuð á hinn dýrð- legasta hátt, svo að hvergi bar skugga á. Hún varð brátt fullskipuð af hátíð- legum kirkjugestum. Margraddaður sálmasöngur og yndislegir orgelhljóm- ar fylltu þetta fagra guðshús. En frá altarinu og prédikunarstólnum hljóm- aði: „Ég flyt yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllu fólki, því að í dag er yður frelsari fæddur.“ Já, það var enn einu sinni runnin upp hátíð yfir heiminn, og drottinn var sjálf- ur gestur mannkynsins. Það voru komin heilög jól.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.