Heimili og skóli - 01.12.1950, Síða 20

Heimili og skóli - 01.12.1950, Síða 20
136 HEIMILI OG SKÓLI störfin undanfarna daga, — jólin voru líka verzlunarhátíð. Nei, — hvaða vit- leysa! Jólin eru aðeins heilög fagn- aðarhátíð. Jæja, það hafði verið mik- ið að gera. Það hafði mikið selzt, — óhemju mikið. Já, hann varð hvíld- inni feginn. Það var hvíld í því að fara í kirkju. Það var auk þess alveg sjálfsagt að hlýða á aftansöng. Það gerði aðfangadagskvöldið enn hátíð- legra. Bifreiðin hans nam staðar hjá skrautlegu húsi, fjölskyldan steig út og gekk inn í hið uppljómaða hús. Angandi lykt af jólamatnum — jóla- kræsingunum — lagði á móti aðkomu- fólkinu, því að vinnukonurnar höfðu auðvitað jólamatinn tilbúinn. Það veitti sannarlega ekki af að fá góðan mat eftir kirkjugönguna. Húsmóðirin leit eftir öllu. Það vantaði víst ekk- ert. Það var gott. Svo hófst dýrlegt og íburðarmikið borðhald. Það voru líka jól í húsi ríkismannsins. Eftir borðhaldið var gengið í kring- um skrautlegt jólatré og úthlutað dýr- mætum jólagjöfum. Greinar trésins svignuðu undan ávöxtum og sælgæti. Það voru líka jól í húsi ríkismannsins. Sonur ríkismannsins var dálítið þreytulegur. Hann reyndi að vera glaður, en það skein enginn fögnuður úr augum hans. Hann söng með, þeg- ar aðrir sungu, en það var enginn fögnuður í söng hans. Hann tók við öllum gjöfunum, sem að honum voru réttar. Þær voru margar og sumar verðmætar. Hann þakkaði fyrir kurt- eislega og alúðlega, en það var heldur enginn fögnuður í hjarta hans vegna allra þessara gjafa. Já, hann fékk svo marga jólaböggla, að hann hafði aldrei fengið fleiri. „A ég þetta allt, mamma?“ spurði hann, þegar hann leit yfir allar gjaf- irnar. j „Já, verzlunin hefur gengið vel í ár,“ sagði faðir hans, „og við höfum ráð á að gefa dregnum okkar jólagjaf- ir. Finnst þér þetta of mikið?“ „Ég veit það ekki, — nei annars. Ég þakka ykkur fyrir,“ sagði sveinn- inn. „En fá allir svona miklar jólagjaf- ir?“ „Allir, nei, nei, ég býst ekki við því,“ sagði faðir hans. „Það hafa ekki allir ráð á því“ „En fá þó ekki allir einhverjar jóla- gjafir?" „Ha, jú, jú. Ætli það ekki? Ætli það fái nú ekki allir einhverjar jóla- gjafir?“ mælti ríkismaðurinn. Sveinninn tók við gjöfunum, skoð- aði þær og reyndi að dást að þeim. Jú, það voru sannarlega fallegar gjaf- ir, það voru sannarlega jól á heimili ríkismannsins, og þó var hann ekkert glaður. Hann vissi ekki, hvernig á því stóð. Hann vissi aðeins, að hann var eitthvað leiður og þreyttur, — þreytt- ur. Foreldrar hans voru glaðir. Vinnu- konurnar voru glaðar og allt starfs- fólkið. Allir voru glaðir — nema hann. Hann bar jólagjafirnar inn í her- bergið sitt. Hann ætlaði að skoða þær betur á morgun, þá mundi hann hafa meira gaman af þeim. Kvöldið leið. Ljós logaði í hverjum kima á heimili ríkismannsins. Skraut- leg kerti loguðu í margarma kerta- stjökum, og borðin svignuðu undan alls konar kræsingum. Þægilegur ilm- ur af ljúffengum ávöxtum fyllti húsið. I

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.