Heimili og skóli - 01.12.1950, Side 26

Heimili og skóli - 01.12.1950, Side 26
142 HEIMILI OG SKÓLI BÆKUR. Eftirfarandi bækur hafa Heimili og skóla borizt til umsagnar. En af því að rúmið er lítið, og með því einnig, að það er enginn greiði við lesendur að endursegja efni bóka fyrirfram, verður þeirra aðeins getið með nokkr- um orðum. Frá bókaútgáfu Æskunnar, Reykjavík: Hörður og Helga, eftir Ragnheiði Jónsdóttur. — Þeir, sem lesið hafa hin- ar vinsælu Dórubækur Ragnheiðar, sem Æskan hefur gefið út, munu hugsa gott til glóðarinnar að lesa þessa bók. Hún er bæði fyrir drengi og stúlkur, og ættu það einnig að vera meðmæli. Eins og nafnið bendir til, segir sagan frá tveimur börnum, Herði og Helgu. Stúlkan hefur misst móður sína og dvelur á barnaheimili, en Hörður hefúr strokið úr sveitinni, þar sem hann átti að vera sumarlangt. Sagan segir frá ævintýrum þeirra eftir að þau hittast. — Bókin er prýdd mörgum teikningum eftir Einar Bald- vinsson, og er öll hin skemmtilegasta aflestrar, eins og fleiri bækur Ragn- heiðar. Sögurnar hennar ömmu, eftir Hann- es J. Magnússon. — Þetta er fjórða bókin í þessum ævintýra- og sagna- flokki og sú síðasta. Afi hefur orðið fyrir slysi, og verður að flytja hann á sjúkrahús; því kemur það á ömmu að segja börnunum sögurnar og ævin- týrin. En þær eru þessar: Frá landi minninganna — Leynifélagið — Gest- urinn — Skin og skúrir — Á grasafjalli — Veiðimaðurinn — Lítil saga um stóra borg — Jól í hreysi og höllum. — Bókin er rúmar 200 blaðsíður að stærð og prýdd nokkrum ágætum myndum eftir frú Þórdísi Tryggvadóttur. Af skiljanlegum ástæðum verður að öðru leyti ekki fjölyrt meir um bók þessa hér. Adda í kaupavinnu, eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson. — Hér er enn komið framhald á hinum vinsælu Öddubókum, sem út hafa komið und- anfarin ár. Nú er Adda iitla vaxin upp úr barnsskónum og bernskuævintýr- um sínum og kannar nú enn einu sinni ókunna stigu. Hún ræður sig í kaupavinnu i sveit, og segir bók þessi frá dvöl hennar þar. Mér þykir því líklegt, að þeir, sem fylgzt hafa með Oddu hingað til, vilji vita, hvernig henni farnast í sveitinni. — Bókin er prýdd nokkrum myndum eftir frú Þórdísi Tryggvadóttur. Kári litli og Lappi, eftir Stefán Júlíusson. — Þessa bók þarf í raun og veru ekki að kynna, því að hún er gamall kunningi og vinur íslenzkra barna. En nú er hún komin út í þriðju útgáfu, og sýnir það bezt vinsældir hennar. — Útgáfa þessi er með mynd- um, eins og hinar fyrri, og með nýrri kápumynd. Ég efast ekki um, að þess- ari nýju útgáfu verði fagnað, því að sú eldri var alveg uppgengin. Stella, eftir Gunnvor Foss, í ís- lenzkri þýðingu Sigurðar Gunnarsson- ar. — Saga þessi er frá Noregi og gerð- ist á hernámsárunum. Sagan segir frá

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.