Heimili og skóli - 01.08.1952, Síða 27

Heimili og skóli - 01.08.1952, Síða 27
HEIMILI OG SKÓLI 71 Neill sagði nýskeð, ekki unnt að girða fyrir sporgöngumenn og taglhnýtinga, en samt verða þeir nú að viðurkenna, að of langt hafi verið gengið. Það hefur einnig orðið örlagaríkt fyrir þróunina, að framkvæmd hins frjálsa uppeldis á allra fyrsta undir- stöðualdri barnsins hefur verið lögð í hendur foreldrunum, sem fengið hafa fræðslu sína í þessum elnum frá þriðju hendi, og það í mjög sundur- slitnum og grófum dráttum, án alls fyrirvara og aukaatriða, sem tengja verður liverju uppeldiskerfi. Galað hefur verið í eyra þeirra og þau login full af ægilegustu reyfarasögum um veslings taugaveiklinga, sem orðið hefðu aumingjar á fertugsaldri sökum þess, að þeim hefði einu sinni í bernsku verið neitað um sultu ofan á brauðsneiðina sína. Og svo hafa for- eldrarnir gert líf sitt að píslarvætti, af ótta við að valda barni sínu þess hátt- ar meinsemdum. Þessara fyrirbrigða verður vart í öllum löndum, en mér er nær að halda, að áhrifanna hafi gætt meira hér heldur en annars staðar. Og það er tæplega tilviljun ein. Það er eitt- hvað í norsku þjóðareðli, sem hneig- ist sterkt að hugsjónum postula hins frjálsa uppeldis. Hér átti að skapa frjálsa, óháða æsku, sem næði að þroska persónuleik sinn og eiginleika, óháð allri þvingun utan að. Þetta átti vel við oss. Vér viljuni gjarnan vera einstaklinga-þjóð, og frelsisþrá vor á sér langa sögu og dapra. Vér erum einnig gömul bændaþjóð, og erum lireyknir af því að hafa raunverulega aldrei átt neinn aðal. í rauninni höf- um vér lteldur aldrei átt neina æðri stétt fheldri manna stétt), og mér leikur grunur á, að vér séum einnig lireyknir af því, og það er varhuga- vert. Því að þegar um ytri menningu er að ræða, umgengnisvenjur og hegð- un, verður ekki fram hjá því gengið, að heldri stéttin er og á að vera fyrir- myndin. Það er háskaspil að segja þetta í voru lýðræðislandi, en ég hætti á það og held að þetta reynist rétt. Gömlu alþýðustéttirnar, bænd- ur og handiðnaðarmenn, höfðu sínar ákveðnu reglur um hæverzka hegðun, meðan þær voru traustar og tiltölu- lega einangraðar stéttir. En erfðavenj- ur þessara gömlu stétta eru horfnar, þar eð berendur þeirra hafa brugðizt. Þær liafa sennilega heldur ekki átt við eða getað fest rætur í iðnræktuðu þjóðskipulagi. Því stóðu menn og standa enn án festu og fyrirmyndar um það, sem nærtækast ætti að vera og sjálfsagðast af öllu, hina daglegu umgengni og hegðun manna á milli. Það eru ekki aðeins börn og æsku- lýður, sem ókunnugt er um, hvernig þeinr beri að hegða sér. Þetta gildir engu síður fjölda hinna fullorðnu. Hjá þeim birtist það þó ekki á jafn- áberandi og óþægilegan hátt og hjá börnum, heldur kemur það fremur í ljós sem hik og óvissa, sem síðar er reynt að breiða yfir (dylja) á ram- norska vísu með borginmannlegu yfir- læti. Það er ekki alltaf óblandin ánægja að liitta hóp landa sinna er- lendis. Eg drap á sök foreldranna. Hún er mikil og afsakanleg. En vér kennarar verðum að taka á oss mjög alvarlegan hluta ábyrgðarinnar, og þeim mun alvarlegri, þar sem vér höfum kosið

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.