Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 17

Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 17
HEIMILI OG SKOLI 11 1) Nú rrueli ég. 2) Þú mátt ekki hreyfa þig. 3) Sjáðu, svona ertu. 4) Oj bara! umar, því að enginn veit hvaða mat þeir fá á morgun.“ — „Ég skal drekka mjólk, því að þá verður hár mitt Ijóst og fallegt.“ Fimm ára börn bera venjulega af fjögra ára börnum í sjálfstæði og dugn- aði. Þau geta klætt sig sjálf, þvegið sér, burstað tennur sínar, en eru þó ekki orðin svo sjálfstæð að þau geri það án þess að vera minnt á það af fullorðn- um. Þau hringla minna úr einu í ann- að, einkum vegna þess, að nú hafa þau víðari sjóndeildarhring. Þau geta gert áætlanir, og unnið að framkvæmd þeirra. Þetta á bæði við um að klæða sig, borða, vinna og leika sér. „Ég“ og aðrir menn. Þau hafa líka betra yfirlit yfir sig sjálf en áður. Þeim er það sæmilega ljóst nú, hvað þau geta og geta ekki. Þau búa yfir meira sjálfstrausti og eru hætt að gorta, að mestu. Þau hafa meiri þolinmæði við verkefni, sem þau

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.