Heimili og skóli - 01.03.1973, Síða 62

Heimili og skóli - 01.03.1973, Síða 62
hún góðs undirbúnings, einkum hvað varð- ar málþroska og lestur. Geti þessir nem- endur ekki sótt skóla að staðaldri, verður að finna aðra þá lausn, sem við má una. Hér verður bent á tvær mögulegar lausnir: a) Ungbarnaskóla, sem starfi í nánum tengslum við þann skóla, sem börnin munu sækja síðar. Slíkir skólar yrðu staðsettir þar sem svo háttar, að dagleg skólasókn án heimavista sé möguleg (sbr. útibú Kleppsjárnsreykjaskóla að Hvanneyri). b) Heimanám fyrir 7 og 8 ára börn, þar sem staðhættir eru þannig, að ekki er unnt að láta börn sækja skóla nema með dvöl í heimavist. Heimanámið yrði skipulagt af þeim skóla, sem börnin fara í við 9 ára aldur. Kennari við þann skóla mundi annast eftirlit og vera nemendum og foreldrum þeirra til leið- beiningar. Æskilegt er, að þessi börn sæki skólann nokkurn tíma vor og haust. 5. Stefnt verði að því að skapa innan hvers heildarsvæðis aðstöðu til eins mikils framhaldsnáms að loknum þeim níu náms- árum, sem um hefur verið rætt, og nem- endafjöldi og aðstæður allar leyfa. 6. I samræmi við ofangreint verður skipt- ing á skóla miðuð við þessi skólastig: a) 1.—4. námsár. Aldur að jafnaði 7—10 ár. Viðfangsefni: Skólaþroskun og kennsla undirstöðugreina (lestur, reikn- ingur, skrift) og byrjað á lesgreinum. b) 5.—7. námsár. Aldur að jafnaði 11— 13 ár. Viðfangsefni: Til viðbótar áður- nefndu, erlend tungumál og raungrein- ar. c) 8.—9. námsár. Aldur að jafnaði 14 og 15 ár. Viðfangsefni: Fjölbreytt kennsla 54 — HEIMILI OG SKÓLI með vali á milli tveggja námslína og auk þess vali einstakra námsgreina. d) Framhaldsstig. Nám að loknum ofan- greindum 9 námsárum. Ekki hafa enn verið teknar neinar ákvarðanir um breytingar á fyrirkomulagi á þessu skólastigi, en hins vegar ljóst, að mikl- ar breytingar hljóta að verða. Sem stendur, er því ekki hægt að gera fyrir því nákvæma grein, en haft er í huga, að á svæðinu sé fyrir hendi stofnun eða stofnanir, sem gefi nemendum kost á: 1. undirbúningi undir ýmiss konar sér- skólanám í nokkuð ríkari mæli en núverandi framhaldsdeildir eru mið- aðar við, 2. bóklegri kennslu fyrir iðnnám, en hinn verklegi hluti þess fari fram í verkskóla, 3. námi á menntaskólastigi, og 4. námi til undirbúnings undir ýmiss störf. Frá mengjanámskeiði Ef hér dveldum lengur en lengi og leikni sljórra gáfna þjálfum, endum loks sem mengja mengi margfeldanna af okkur sjálfum. Í,. Margt sé hverjum manni kennt, sem munist og geymist lengi. En við erum aðeins element í eilífðanna mengi.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.