Heimili og skóli - 01.03.1973, Side 66

Heimili og skóli - 01.03.1973, Side 66
einn yfir bókunum og las. Ég var drengur eins og þínir drengir eru, en í Barbiana var slíkt ekki liðið. Ég varð að vera hjálpfús, jafnvel þótt ég væri ekki í skapi til þess. Drengirnir úr borginni Þegar efri bekkir barnaskólans í Vicchio voru byrjaðir, komu nokkrir drengir þaðan til Barbiana. Auðvitað þeir, sem höfðu fall- ið. Feimnin virtist ekkert vandamál hjá þeim. En þeir voru fávísir á öðrum svið- um. T. d. fannst þeim sjálfsagt að farið væri í leiki, frí höfð öðru hverju og að skólinn væri fórn fyrir þá. Þeir höfðu aldrei heyrt um það getið, að maður færi í skóla til þess að læra og það væni forrétt- indi. Þeir litu svo á, að kennarinn ætti að vera hinum megin við púltið, svo að hægt væri að gera at í honum. Jafnvel reyndu þeir að skrifa upp verkefni eftir öðrum. Langur tími leið, þar til þeir trúðu því, að engar einkunnir voru gefnar. Hænsni Svipuð undanbrögð voru viðhöfð, þegar kom að kynferðismálunum, sem þeir héldu að hafa ætti í hvíslingum. Sæju þeir hana elta hænu, urðu þeir kindarlegir á svipinn, rétt eins og hórdómur hefði verið drýgður fyrir augunum á þeim. Samt var það svo, að kynferðisfræðslan var það námsefni, sem fyrst vakti áhuga þeirra. I skólanum áttum við bók um líf- færafræði, og sátu þeir úti í horni með hana. Tvær blaðsíður í bókinni voru bein- línis lesnar upp til agna. Seinna fundu þeir ýmislegt fleira fróð- legt í bókinni. Og þar kom, að jafnvel mannkynssaga gat verið skemmtileg. 58 — HEIMILI OG SKÓLI Sumir þeirra hafa haldið áfram að leita eftir nýjum fróðleik og hafa áhuga á öllu. Þeir kenna yngri nemendum og hafa orðið einn af okkur. Þó standa sumir enn utan dyra. Stúlkur Til Barbiana komu aldrei stúlkur frá borginni. Kannski vegna þess að vegurinn var hættulegur? Kannski vegna þess að for- eldrar töldu ekki nauðsynlegt, að stúlkur gengu í skóla? Þeir trúðu því, að konunni nægði að hafa sinn hænuhaus. Karlmenn ætlast ekki til þess, að konur séu gáfaðar. En er þetta ekki eins konar kynþáttamis- rétti? Við getum ekki skellt skuldinni á ykkur, kennarar. I þessum efnum metið þið stúlkur meir en foreldrarnir. Sandro og Gianni Sandro var 15 ára, stór eftir aldri og því sem næst fullvaxinn maður. Kennarar hans sögðu, að hann væri vangefinn, og nú átti hann að vera í þriðja skiptið í 4. bekk barnaskólans. Gianni var 14 ára. Hann var áhugalítill, enda næstum því ólæs. Hann var talinn af- brotadrengur og átti það við rök að styðj- ast, en engin afsökun fyrir því, að honum skyldi vera vísað úr skóla. Hvorugur þeirra hafði í hyggju að halda áfram í skóla. Þeir höfðu náð því marki að hætta námi og fara að vinna. Þeir komu til okkar vegna þess, að við lögðum lítið upp úr einkunnum, og voru settir í bekk með jafnöldrum sínum. Þetta var í fyrsta skipti, sem skólinn hafði sýnt þeim velvild. Sandro mun alltaf muna það. Gianni man það stundum. V. H. þýddi.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.