Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Page 56

Læknaneminn - 01.11.1965, Page 56
56 LÆKNANEMINN Við Surtshelli. — Leiðsög'umaðuriim að snæðingi. liðinu. Kenndu menn þar Helju og kunnu nú vel að meta hlýja sumar- rigninguna, er út kom. Var nú ekið sem ákaflegast suður á bóginn frá ófögnuði þessum, og tók ann- ar Finninn sótt þá, er nausea itineris eða vehicularis nefnist. Vildi hann eigi þýðast pillugums né góð ráð og var því lagður um bíl þveran. Staldrað var við Barnafoss, en síðan brennt í Reykholt, eins og Snorri mundi hafa orðað það, þar sem tilvonandi boðberar mannkær- leikans kýldu vömbina, meðan með- bróðir þeirra kúgaðist í bílnum. Loks var ekið að Deildartunguhver, og brá Magnús sér upp á hól þann, er hverinn vellur úr. Lukust þá um hann gufur svo miklar, að varla sá á kollinn, og vitraðist honum þar urt sú, er dvergskoilakambur nefnist og hvergi vex annars staðar á byggðu bóli. Bigi hresstist þó Finninn við þessi undur, enda galdrar meiri með þeirri þjóð. Mátti þá leita læknis á Kleppjárnsreykj- um, og heyrðist síðan ekki æmta í sjúklingnum fyrr en í Reykjavík. Þangað náðu menn skömmu eftir mið- nætti, ósárir að kalla, en ákaflega hásir. B. F. S.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.